„Frelsið er besta ávöxtunin sem peningar gefa manni“

Hjónin Georg Lúð­víks­son og Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir þýddu bók­ina Sálfræði pen­ing­anna - sígildar lex­íur um auð­legð, græðgi og ham­ingju. Bókin hefur farið sig­ur­för um heim­inn en þar er ekki fjallað um leiðir til að græða heldur er við­fangs­efnið nálg­ast út frá nýju sjón­ar­horni. Georg segir að einmitt þess vegna hafi bókin kallað sterkt á þau hjónin.

„Frelsið er besta ávöxtunin sem peningar gefa manni“

Georg Lúð­víks­son hefur getið sér gott orð sem tækni­frum­kvöð­ull og einn helsti sér­fræð­ingur lands­ins í fjár­málum heim­il­anna, sem hefur verið hans starfs­vett­vangur í 20 ár.

Hann hefur sinnt fjár­mála­ráð­gjöf og kennslu en er lík­lega þekkt­astur sem einn stofn­enda Meniga, þar sem hann starf­aði sem for­stjóri í 13 ár. Und­an­farið hefur Georg unnið að und­ir­bún­ingi nýs fjár­tækni­fyr­ir­tækis sem heitir Spesía og snýst um að hjálpa Íslend­ingum að fjár­festa með ein­földum hætti í alþjóð­legu eigna­safni hluta­bréfa og skulda­bréfa, en þjón­usta Spesíu fer í loftið á næstu vikum. Georg er mennt­aður verk­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og er að auki með MBA-gráðu frá Harvard. Hann segir að bókin hafi kallað sterkt á þau hjón og sé að hans mati besta bókin um fjár­mál fyrir almenn­ing sem hefur komið út á þess­ari öld. Bókin er aðgengi­leg og segir sögur af mann­legri hegðun í pen­inga­málum og sál­fræð­ina sem liggur að baki henni, og hvernig skiln­ingur …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár