Gauti B. Eggertsson um nei-baráttuna: „Þetta var bara lygakenndur áróður“

Gauti B. Egg­erts­son, pró­fessor við Brown-Háskóla í Banda­ríkj­unum segir lyga­kenndan áróður hafa ein­kennt mál­flutn­ing nei-sins og segir að það þurfi að draga fólk til ábyrgðar hvað það varðar.

Gauti B. Eggertsson Gauti B. Eggertsson var harðorður í gar nei-sinna sem hann segir að hafi beitt fyrir sig lygum í málflutningi sínum.

„Mér fannst ótrú­lega ófor­skömmuð Brexit-bar­átta rekin af Áfram Íslands og það verður að skoða það eftir kosn­ingar, og draga þetta fólk til ábyrgðar fyrir orð sín,“ sagði Gauti B. Egg­erts­son, hag­fræð­ingur og pró­fessor hjá Brown-háskól­anum í Banda­ríkj­unum. Hann hefur beitt sér í ESB-umræð­unni, þá helst með greina­skrifum. Hann er jafn­framt bróðir Dags B. Egg­erts­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

Heim­ildin ræddi við hann í gær eftir að fyrstu tölur lágu fyrir og óljóst hvernig úrslitin yrðu. Ljóst er að Ísland mun ekki taka aftur upp aðild­ar­við­ræður við ESB sam­kvæmt nið­ur­stöðum kosn­ing­anna þar sem rétt rúmur meiri­hluti kaus gegn áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræðum.

Sturtað peningum í auglýsingar

„Rang­færsl­urnar héldu bara áfram og lygarnar urðu bara stærri og þeim var beint til unga fólks­ins sem var ginn­keypt­ara fyrir þeim,“ heldur Gauti áfram.

Spurður hvort fólk væri að falla fyrir slíkum ósann­indum svarar Gauti: „Við sjáum til. Það virt­ist vera mikil sveifla á yngra …

Kjósa
90
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Why is there no formal challenge of the yes or no campaign?
    0
  • SS
    Sveinn Sveinbjörnsson skrifaði
    Ég er að velta því fyrir mér hvort þetta séu keypt úrslit og hvort kosningar á Íslandi séu að líkjast þeim amerísku þar sem allir þingmenn eru keyptir með framlögum auðmanna og stórfyrirtækja. Var að fletta Kópavogsblaðinu. Þar voru 2 heilsíðuauglýsingar frá neisinnum en engar frá jásinnum.
    4
  • Sveinn Erlendsson skrifaði
    Kannski lán í óláni, þá heldur ESB óskorðuðu lagasetningavaldi hér hvað varðar leikreglur lýðræðisins.
    Í ljósi niðurstöðunnar getum við kannski gert okkur vonir um að í náinni frámtíð fáum við þaðan gagnlegar reglur til að halda aftur af peningalýðræði hagsmunaaflanna.
    9
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Kæru landar. Þið þurfið ekkert að hanga í okurlánum og Bónusokri. Komið frekar til okkar í ESB
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár