Bræðurnir á toppnum eftir IKEA-viðskiptin

Bræð­urn­ir Sig­urð­ur Gísli og Jón Pálma­syn­ir eru báð­ir með­al tíu tekju­hæstu skatt­greið­enda á Ís­landi. Önn­ur syst­ir þeirra, Lilja, er einnig í tekju­hæsta pró­sent­inu en hin, Ingi­björg, greið­ir sína skatta á Bretlandi. Þau eru börn Pálma Jóns­son­ar, stofn­anda Hag­kaups, en bræð­urn­ir áttu við­skipti sín á milli með IKEA.

Bræðurnir á toppnum eftir IKEA-viðskiptin
Pálmabörn Systkinin Sigurður Gísli, Jón og Lilja eru öll á Hátekjulistanum í ár en Ingibjörg er skráð á Bretlandi. Mynd: RÚV

Sigurður Gísli Pálmason fjárfestir var næsttekjuhæsti einstaklingur á Íslandi í fyrra. Árstekjur hans námu tæpum 3,2 milljörðum króna en hann greiddi um 696 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt.

Sigurður Gísli seldi IKEA á Íslandi til bróður síns, Jóns Pálmasonar, í fyrra. Sá er númer 8 á Hátekjulista Heimildarinnar með um 1,3 milljarða króna í árstekjur.

Félag Jóns, Fari ehf., keypti í fyrra allt hlutafé í Miklatorgi, rekstrarfélagi IKEA á Íslandi, af Eignarhaldsfélaginu Hof, sem er í eigu bræðranna. Við það varð Jón eini eigandi IKEA en Hof seldi sömuleiðis Urriðakot ehf. sem heldur utan um fasteign IKEA í Garðabæ.

Bræðurnir höfðu árið áður selt rekstur IKEA í Eystrasaltsríkjunum til Inter IKEA Group og má að líkindum rekja háar fjármagnstekjur þeirra í fyrra til þeirra viðskipta, enda lauk söluferlinu í desember 2024. Reksturinn var í eigu Fara og Dexter Fjárfestinga ehf., sem er í eigu Sigurðar Gísla. Það félag skilaði 27 milljarða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár