„Frábært að eiga“ krónuna en „ferlegt að skulda hana“

Guðni Th. Jóhann­es­son segir Íslend­inga í „fjár­hættu­spili“ með krón­una og telur að skera eigi úr um auð­linda­mál í upp­hafi við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið. Fyrr­ver­andi for­setar Íslands hafa mis­mun­andi sýn á spurn­ing­una um aðild­ar­við­ræður Íslands við Evr­ópu­sam­bandið.

„Frábært að eiga“ krónuna en „ferlegt að skulda hana“
Guðni Th. Jóhann­es­son Ræddi stöðu Íslands í Silfrinu á RÚV í gær­kvöldi.

Sagn­fræð­ing­ur­inn Guðni Th. Jóhann­es­son, sem var for­seti Íslands frá 2016 til 2024, líkir hús­næð­is­lánum Íslend­inga við „fjár­hættu­spil“. 

Guðni ræddi for­sendur Íslend­inga fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um fram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið í við­tali í Silfrinu á RÚV. Að hans mati ætti að byrja á að skera úr um hvort Íslend­ingar haldi yfir­ráðum yfir auð­lind­inni, vegna sögu­legs minnis þjóð­ar­innar af bar­áttu um hana, og „láta gott heita“ ef ekki.

Hann sagði Ísland vera „smá­ríki í hörðum heimi“ og benti á þróun mála í Banda­ríkj­unum. For­set­inn þar, Donald Trump, hafi sagt að „hans leið­ar­ljós á alþjóða­vett­vangi sé hans eigin sýn og hann taki til­lit til alþjóða­laga út frá því.“ 

Forsetar komi og fari, en „mér segir svo hugur að næsta for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins gæti jafn­vel reynt að vera meiri Trump en Trump sjálfur,“ sagði Guðni.

Hið gamla fyr­ir­komu­lag, þar sem ganga mætti að því nokkurn veg­inn sem vísu hvernig Banda­ríkja­menn túlk­uðu og litu á varn­ar­sam­starf Íslands og Banda­ríkj­anna, væri í óvissu. „Það væri ansi hug­rakkur maður sem liti svo á að það er nú bara fyr­ir­sjá­an­legt að ekk­ert muni breyt­ast í þeim efnum í fram­tíð­inni. Það er einn þáttur enn sem þarf að hafa til hlið­sjónar,“ sagði Guðni.

Guðni kvað ekki úr um end­an­lega afstöðu sína til aðild­ar­við­ræðna, en taldi að meg­in­þorri Íslend­inga væri sáttur við að fá að gera upp hug sinn í mál­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Hann ræddi sögu­lega og praktíska stöðu þjóð­ar­innar og benti á að gjald­mið­ill­inni, íslenska krónan, væri „ákveðið vand­ræða­barn“.

Áhyggjur og efi við eldhúsborðið

„Það er frá­bært að eiga hana, en það er fer­legt að skulda hana,“ segir Guðni. „Og þessi munur á Íslandi er bara meiri en víð­ast hvar ann­ars staðar. Og hversu mörg heim­ili eru á Íslandi þar sem fólk hefur setið við eld­hús­borðið fram á nótt og hugsað, er það verð­tryggt lán sem við eigum að fá núna? Er það óverð­tryggt? Eigum við að svissa yfir? Eigum við að hafa það jafnt?“

Þá sagði hann að á meðan séu öflug fyr­ir­tæki „með sitt meira og minna allt sitt í evrum“.

Fólkið í land­inu efins, áhyggju­fullt yfir því hver sé rétta leiðin.

„Það eina sem er víst í öllu þessu fjár­hættu­spili er þetta: Bankinn vinnur alltaf,“ sagði Guðni.

Vaxta­munur íslensku bank­anna hefur farið vax­andi, eins og Heim­ildin hefur fjallað um. 

Í fyrra­málið mun Seðla­bank­inn ákveða hvort stýri­vextir verði áfram 7,75%, en flestir mark­aðs­að­ilar spá hækkun upp í 8%. Stýri­vextir Seðla­banka Evrópu eru hins vegar 2,25%.

Auðlindin meginmálið

Guðni rann­sakar nú land­helg­is­deilur Íslend­inga við Breta. Hann telur að mýtur móti sýn Íslend­inga á sög­una, þannig að þjóðin hafi „alltaf verið sam­einuð og alltaf unnið fulla sigra,“ sem hafi ekki verið raunin. Í grein í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar sagði Guðni Th. nýverið að Íslend­ingar hefðu í haf­rétt­ar­málum „fylgt frekar í kjöl­far ann­arra“ og að „nán­ast allt sem gerð­ist í íslenskri sjálf­stæð­is­sögu mót­að­ist af erlendum straumum og stefnum“.

Lær­dóm­ur­inn af því að berj­ast fyrir yfir­ráðum yfir auð­lind­inni móti þó við­horf Íslend­inga. „Átti ráða­menn í Brussel sig ekki á því þá er betra að láta bara gott heita fyrr en seinna.“

Guðni telur að mál­efni sjáv­ar­út­vegs­ins eigi að skipta sköpum og sæta for­gangi í hugs­an­legum við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið.

„Ólíkt því sem gerð­ist 2009 til 13 hygg ég að það væri rétt­ast og skyn­sam­leg­ast að hefja leik­inn á mál­efnum sjáv­ar­út­vegs­ins fyrst og fremst,“ sagði hann. Þannig „komi í þeirri umsókn fram að Íslend­ingar munu ekki sýna því áhuga að ganga í sam­bandið nema tryggt verði á skýran hátt að yfir­ráð yfir auð­lind­inni verði áfram í höndum Íslend­inga og það er þá bara fyrsta skrefið,“ sagði hann og bætti við: „Ætli það verði þá bara síð­asta skrefið. Ekki myndi ég nú telja það. Og það lægi þá bara fyrir í byrjun.“

Næst sé það land­bún­að­ur­inn. „Ég held að þetta sé eitt meg­in­at­riðið í huga margra, yfir­ráð yfir auð­lind­inni og auð­vitað sér­staða íslensks land­bún­aðar. Það verði tryggt að horft sé til þess að aðstæður hér eru allt aðrar en á meg­in­landi Evrópu,“ sagði Guðni.

Ræddu auð­lindir og öryggiSigríður Hagalín Björns­dóttir, þátt­ar­stjórn­andi Silf­urs­ins á RÚV, spurði Guðna Th. Jóhann­es­son út í álita­mál Evr­ópu­sam­bandsum­sóknar, allt frá auð­linda­málum yfir í full­veldi og örygg­is­mál.

Spurður út í afstöðu sína til umræðu um að ESB-aðild skerði full­veldi Íslend­inga benti Guðni á að laga­pró­fessor hafi við upp­töku EES-samn­ings­ins bent á að þar færu mestu breyt­ingar á lagaum­hverfi Íslend­inga frá því Jónsbók var árið 1281. „Full­veldi þró­ast og breyt­ist,“ sagði hann og benti á að EES-samn­ing­ur­inn hafi verið gerður án stjórn­ar­skrár­breyt­ingar og að við­horf til her­setu hefðu verið afger­andi nei­kvæð áður en Banda­ríkja­her „ark­aði hingað til lands“. „Túlkanir á full­veldi eru mis­mun­andi,“ sagði Guðni og taldi Íslend­inga ekki geta sagt við Finna eða Spán­verja, sem eru í ESB, að þeir væru ekki full­valda.

Stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Ólafur Ragnar Grímsson, sem var for­seti á undan Guðna, verið einn helsti tals­maður Áfram Íslands, sem vill hafna aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Ólafur Ragnar sagði á stofn­fundi Áfram Íslands í jún­í­byrjun að það væri óskynam­legt að ganga í ESB þar sem „fjar­lægar valda­stofn­anir eiga að fara að ráða miklu um hvað við gerum hér á Íslandi.“ Auk þess sé „mis­skiln­ingur að þetta sé bara ein­hver könn­un­ar­leið­angur“.

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið fer fram laug­ar­dag­inn 29. ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Hi á okkur molana á islndi!!
    -1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Það er alltaf frábært að eiga fjármagnseign sem ber háa vexti, sama hvað gjaldmiðillinn heitir.

    Það er ekki síður ferlegt að standa í skuld sem ber háa vexti, sama hvað gjaldmiðillinn heitir.

    Jafnvel sagnfræðingar ættu að vita að vextir eru skrifaðir á lánasamninga, ekki peningaseðla.
    -4
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      það er auðvitað satt en eins og þú hlýtur að vita þá er vaxtastig hér hátt vegna krónunnar. Það vill enginn lána út í handónýtum gjaldmiðli nema vera viss um að fá sama verðmæti til baka.
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár