Tilbúin að líta á forsendubrest sem tækifæri fyrir stjórnvöld og fyrirtæki

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist líta svo á að fyr­ir­sjá­an­legur for­sendu­brestur kjara­samn­inga í lok mán­aðar geti verið mik­il­vægt tæki­færi fyrir stjórn­völd og fyr­ir­tæki til að gera betur.

Tilbúin að líta á forsendubrest sem tækifæri fyrir stjórnvöld og fyrirtæki
Sólveig Anna Jóns­dóttir Formaður Eflingar segir félagið hafa sínar kröfur, og sé til­búin í sam­tal gangi for­sendur kjara­samn­inga ekki eftir. Mynd: Heimildin

„Við erum til­búin til þess að líta á stöð­una með þeim hætti að hér sé að finna tæki­færi fyrir aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­völd til að lag­færa viss atriði í sam­fé­lag­inu,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Ljóst þykir að for­sendur kjara­samn­inga muni bresta í lok mán­aðar þegar nýjar verð­bólgu­tölur verða birtar.

Fyrirséð er að árs­verð­bólga muni mæl­ast svo há að for­sendur kjara­samn­inga bresta miðað við for­sendu­á­kvæði samn­ing­anna sem gerðir voru árið 2024. Í þeim féllstu verka­lýðs­fé­lög lands­ins á hóf­legar hækk­anir gegn því að verð­bólg­unni yrði náð niður fyrir fimm pró­sent, eða 4,7 pró­sent. Ekkert bendir til þess að verð­bólgan fari niður fyrir nauð­syn­leg mörk eins og kveðið var á um í samn­ingum.

Hlaupist undan merkjum

Formenn sex verka­lýðs­fé­laga skrif­uðu grein í byrjun vik­unnar þar sem stjórn­völdum og fyr­ir­tækjum var sendur tónn­inn. Halla Gunn­ars­dóttir for­maður VR sagði þá að fyr­ir­tæki á Íslandi hefðu hrein­lega hlaup­ist undan merkjum og …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár