Er tortryggilegt að eftirlitsskip frá ESB sé í Reykjavíkurhöfn?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir skip frá ESB „mætt í Reykja­vík­ur­höfn að kíkja í pakk­ann“. Fiski­stofa og Land­helg­is­gæslan segja skipið koma reglu­lega til lands­ins en það sinnir veiði­eft­ir­liti sam­kvæmt alþjóða­samn­ingum sem Ísland er aðili að.

Er tortryggilegt að eftirlitsskip frá ESB sé í Reykjavíkurhöfn?
Ocean Protector Skip á vegum EFCA sinnir reglu­bundnu eft­ir­liti á Norrænum haf­svæðum. Mynd: EFCA

„Þegar ég sá fyrst mynd af þessu skipi á net­inu velti ég fyrir mér hvort það væri gervi­greind,“ skrif­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, í færslum á sam­fé­lags­miðl­unum Facebook og X á sunnu­dag sem hafa síðan fengið hund­ruð „like“-við­bragða. „En þarna er skipið, mætt í Reykja­vík­ur­höfn að kíkja í pakk­ann.“

Með færsl­unni fylgdu myndir af skip­inu Ocean Protector, merktu „EU fis­hery inspection“ og merki Evr­ópu­sam­bands­ins.

Myndir af skip­inu hafa farið í dreif­ingu víðar á sam­fé­lags­miðlum með aðdrótt­unum um að vera þess á Íslandi hafi eitt­hvað með mögu­lega aðild­ar­um­sókn Íslands að ESB að gera.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fiski­stofu er það vel þekkt að skip eins og Ocean Protector, sem er skráð í Portúgal en er á vegum EFCA, Fisk­veiði­eft­ir­lits­stofn­unar ESB, komi við á Íslandi. Skipið er eitt af þeim sem sinna eft­ir­liti á nor­rænum haf­svæðum sem alþjóð­legir samn­ingar gilda um en fyrir stopp­inu …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓÁS
    Ólöf Ágústína Stefánsdóttir skrifaði
    Þessi áróður hans og flokksmeðlima er óþolandi. Getum við ekki farið fram á málefnalegar umræður og að tiltölulega rétt sé farið með því sem er verið að varpa fram. Alvarlegt að rúv hafi verið með svona hræðilegt Silfur síðasta sunnudag. Það hvernig SD fékk að vaða uppi og trufla meðþátttakendur á ekki að eiga sér stað. Spurning hvort eigi að hleypa honum að borðinu með þessa hegðun.
    2
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Greinilega vill enginn missa af sólmyrkvanum.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Dr. Sigmundur Davíð fær taugaáfall :-)
    2
  • ÓRÁ
    Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
    Það er líka nokkur fjöldi ferðamanna sem er að koma frá Evrópu.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár