Kemur nýr í eigendahóp Morgunblaðsins

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðar­félagsins Brim, eignast hlut í Morgun­blaðinu við kaup þess á Lýsi. „Ég held við séum ekki að fara að auka okkar hlut í blaðinu,“ segir hann, en eigendur blaðsins úr röðum útgerðar­manna greiddu taprekstur þess í fyrra með 600 milljóna hlutafjár­aukningu.

Guðmundur Kristjánsson
Guð­mundur Krist­jáns­son Nýr hlut­hafi í Morg­un­blað­inu segir hlut sinn lít­inn og að hann hafi lítið pælt í honum. Mynd: Brim

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi útgerðar­félagsins Brims, kemur nýr inn í eigendahóp Morgun­blaðsins eftir kaup félagsins á Lýsi hf.

Kaup Brims á Lýsi gengu nýverið í gegn. Virði Lýsis í viðskiptunum var 30 milljarðar króna en kaup­verðið var greitt með reiðufé og hluta­bréfum í Brimi. Með í kaupunum fylgdu hlutir í ótengdum rekstri sem Lýsi á, meðal annars 1,27% hlutur í móður­félagi Morgun­blaðsins, Þórsmörk ehf. 

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta,“ segir Guðmundur í samtali við Heimildina um hlutinn í Morgun­blaðinu sem hann segir lengi hafa verið í eigu Lýsis. „Það eru margir búnir að eiga þetta blað í gegnum áratugina. Ég held við séum ekki að fara að auka okkar hlut í blaðinu.“

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Þórsmörk, móður­félag Árvakurs, útgáfu­félags Morgun­blaðsins, tapaði 346 milljónum króna í fyrra en eigendur greiddu upp …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi hagsmunahópur sem stendur að baki útgáfu Morgunblaðsins er orðinn býsna einsleitur. Það kann ekki góðri lukku að stýra.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár