Myrkur í ágúst 14 — Sá fyrsti sem skildi sólmyrkva, og Tunglið

Anaxagóras var dæmdur í útlegð í Aþenu eftir að hafa uppgötvað hvað Sólin og Tunglið eru í raun

Anaxagórax var risi
Anaxa­górax var risi í vís­indum þótt hann hefði nær engin tæki af neinu tagi.

Hérna er greinin frá í gær.

En fyrir tveim dögum var sagt í þessari myrkurröð frá Þalesi frá Míletus, merkum hugsuði forn­grískum sem lagði til málanna við að þróa hugmyndir okkar um sólmyrkva.

En snilli Þalesar komst þó ekki í hálf­kvisti við dýptina í huga Anaxagórasar.

Ótrúlegur snillingur, sá maður. Hann fæddist í borginni Klazómenæ um árið 500 fyrir upphaf tímatals okkar; Klazómenæ er nú í Tyrklandi.

Skemmst er frá því að segja að Anaxagóras gerbreytti sýn mannsins á alheiminn.

Logandi steinar?

Hann erfði umtals­verðar eignir en afsalaði sér þeim til að helga líf sitt rann­sóknum á náttúru­vísindum og heimspeki. Um þrítugt fluttist hann til Aþenu og átti mikinn þátt í að gera borgina að lifandi miðstöð umræðna, rannsókna og hugleiðinga um vísindi og heimspeki á mjög breiðum grund­velli. Hann varð einn helsti lærifaðir stjórnmála­skörungsins Períklesar.

Á hans dögum litu flestir Grikkir enn á sólina og tunglið sem lifandi guðlegar verur en Anaxagóras blés á það. Hann lýsti bæði sól og tungli sem glóandi málm­klumpum eða logandi steinum, en hann var líka fyrsti maðurinn, svo vitað sé, sem áttaði sig á að Tunglið byggi ekki yfir sinni eigin birtu, heldur endur­varpaði það einvörðungu birtu frá sólinni.

Náttúrufyrirbæri, ekki váboðar

Og Anaxagóras lýsti bæði tungl- og sólmyrkvum ekki sem válegum fyrir­boðum frá reiðum guðum eða mikil­vægum skila­boðum frá þeim hinum sömu, og þaðan af síður sem næstum blóðugum slags­málum Sólar­guðsins og Tungl­gyðjunnar á himnum uppi, heldur einfald­lega eins og við höfum síðan skilið þessi fyrirbæri:

Himin­hnettir á braut um geiminn sem varpa reglulega og á mjög svo fyrir­sjáanlegan hátt skugga hver á annan.

Í alla staði náttúruleg fyrirbæri, sem sé.

Merkilegt má heita á hve réttri leið Anaxagóras var. Hann lýsti því meira að segja að á Tunglinu væru úfin fjöll, víðáttu­miklar sléttur og breið gil. Hann hélt því reyndar líka fram að á Tunglinu væru sennilega lifandi verur, bæði menn og dýr, en það má vel fyrirgefa honum það, miðað við hve margt annað var rétt hjá honum.

Guðlast!

Aþenubúar til forna eru rómaðir í sögunni fyrir frjáls­lyndi og djarflega hugsun. Kenningar Anaxagorasar bæði almennt um eðli alheimsins (sem við hlaupum hér yfir), sólkerfið, reikistjörnurnar, tunglið og myrkvana voru hins vegar of mikið af því góða fyrir íbúa borgarinnar.

Hann var dreginn fyrir dóm um árið 430 og sakaður um guðlast.

Stærsta sök hans var að halda því fram að himin­hnettirnir (og stjörnurnar) væru náttúruleg fyrir­brigði en ekki ódauð­legir guðir. Þessar hugmyndir voru taldar grafa undan hefð­bundnum trúar­brögðum og guðlegu eðli himin­tunglanna, sem var alvarlegt brot í Aþenu.

Pólitísk sjónarmið blönduðust einnig inn í því óvinir Períklesar sáu þarna færi á að draga úr virðingu hans með því að ráðast að hinum róttæku kenningum Anaxagorasar vinar hans.

Slapp við dauðadóm

Svo fór að Anaxagoras var dæmdur sekur.

Hann hafði engin vísindaleg mælitæki og hvað þá sjónauka til að sýna fram á að kenningar hans væru réttar.

Heimildir eru af skornum skammti um réttar­höldin en talið er að saksóknari hafi jafnvel farið fram á dauðadóm yfir spekingnum. Pericles kom fyrir dóminn og mun hafa beðið vini sínum vægðar og því varð úr að spekingurinn var dæmdur í útlegð, ekki líflátinn.

Áfall við Hellusund

Þótt hann slyppi við dauðadóm var sakfellingin honum samt mikið áfall en hann bjó síðustu árin í borginni Lampsakos við Hellusund og var þar í miklum metum.

Eins og hann átti skilið.

Þó mun hann að lokum hafa svipt sig lífi í hárri elli með því að svelta sig til bana.

Ótrúlegur snillingur, þessi maður
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Spámenn voru og eru ótrúlega naskir á að spá fyrir um atburði, sem enginn trúir á, en hafa allir komið fram og eiga eftir að koma fram. Ég las bók um heimsfrægan spámann, en man því miður ekki alveg hvað hann hét (eitthvað líkt Nikodemus). ALLT, sem hann spáði, er komið fram og ég trúi að það sem eftir er, komi líka fram.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár