Íhugar að láta handtaka Netanyahu

Hann á heima í Haag, segir Zoran Mamdami, borgar­stjóri New York, um forsætis­ráðherra Ísraels sem stefnir á fund hjá Sameinuðu þjóðunum.

Zoran Mamdami
Zoran Mamdami Borg­ar­stjór­inn í New York segir að Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, sé sekur um stríðs­glæpi, eins og óháðar alþjóð­lega rann­sóknir hafa bent til. Mynd: AFP

Zohran Mamdani, borgar­stjóri New York, er í viðræðum um hvort reyna eigi að handtaka Benjamin Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, á komandi leiðtoga­fundi Sameinuðu þjóðanna, að því er hann sagði hann í viðtali um helgina. Hörð viðbrögð bárust frá stuðnings­mönnum Netanyahu.

„Ég tel að Netanyahu forsætis­ráðherra eigi heima í Haag,“ sagði Mamdani við The New York Times. „Hann er stríðs­glæpamaður sem hefur verið ákærður af Alþjóð­lega sakamála­dómstólnum.“

Mamdani, sem er vinstri­sinnaður og hefur kallað Ísrael „aðskilnaðar­stjórn“, bætti við: „Þetta er skoðun sem margir deila, einfald­lega vegna þess sem aðgerðir hans hafa leitt af sér á undan­förnum árum.“

Mamdani viðurkenndi að hann væri ekki viss um hvort hann hefði vald til að skipa lögreglunni í New York að handtaka erlendan leiðtoga en ræðir málið við lögfræði­teymi borgarinnar.

„Hvað sem lögin leyfa mér að gera í New York-borg, það munum við gera,“ sagði hann.

Allsherjar­þing Sameinuðu þjóðanna, …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ósvífni Ísraelsríkis er óhugnanleg með diggri aðstoð USA.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Stríðglæpamaðurinn Netanyahu á heima í Haag og hvergi annars staðar.

    Sama má segja um Pútin einræðisherra Rússlands.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár