Kynnisferðir græddu hálfan milljarð á rekstri strætisvagna

Rekstar­tekjur Almenn­ings­vagna Kynn­is­ferða hækk­uðu vegna vísi­tölu­teng­ingar í samn­ingi við Strætó bs. Móð­ur­fé­lag Icelandia ferða­þjón­usturis­ans greiðir 300 millj­ónir í arð til eig­enda sinna, Eng­eyj­a­rætt­ar­innar og líf­eyr­is­sjóða. Flybus nú án sam­keppni í rútu­ferðum til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli.

Kynnisferðir græddu hálfan milljarð á rekstri strætisvagna
Flybus Kynn­is­ferðir reka Flybus rút­urnar, fjölda fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu og sjá um rekstur stræt­is­vagna í Reykja­vík og nágrenni. Mynd: Golli

Kynn­is­ferðir, sem reka ýmsa ferða­þjón­ustu undir merk­inu Icelandia, högn­uð­ust um 915,5 millj­ónir króna í fyrra sam­kvæmt árs­reikn­ingi 2025. Eignir sam­stæð­unnar námu um 20 millj­örðum króna og eigið fé tæpum 8 millj­örðum.

Dótt­ur­fé­lög Kynn­is­ferða eru fjöl­mörg og tengj­ast flest ferða­þjón­ustu. Þar á meðal eru Ferða­skrif­stofa Icelandia sem rekur Flybus rútu­þjón­ust­una til Kefla­vík­ur­flug­vallar, en Heim­ildin fjall­aði nýverið um að Flybus væri nú án sam­keppni eftir að Airport Direct hætti akstri. Engar ákvarð­anir hafa verið teknar hjá inn­við­a­ráðu­neyt­inu eða Vega­gerð­inni um að efla tíðni eða lengja þjón­ustu­tíma leiðar 55 hjá Strætó sem fer á milli BSÍ og Leifs­stöðvar, þrátt fyrir til­lögur starfs­hóps inn­við­a­ráð­herra um aðgerðir.

Annað dótt­ur­fé­lag, Almenn­ings­vagnar Kynn­is­ferða, sinnir rekstri stræt­is­vagna í Reykja­vík og nágrenni í sam­ræmi við samn­ing við Strætó bs. Dótt­ur­fé­lagið hagn­að­ist um 565 millj­ónir króna árið 2025 en aðeins 3,8 …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Einokunin hefur alltaf gefið vel af sér, en það er gott að tala um samkeppni og lýðræði á tyllidögm. Háraliturinn rann jú niður kinnar átrúnaðargoðsins þegar það hélt því fram að "the truth is not always true".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár