Smábarn deyr eftir að því var bjargað úr heitum bíl

Í hita­bylgj­unni í Frakklandi fannst smá­barn með­vit­und­ar­laust í heit­um bíl og var flutt á sjúkra­hús, þar sem það lét líf­ið. Fleiri börn hafa lát­ið líf­ið með sama hætti á síð­ustu dög­um í ban­vænni hita­bylgju sem skell­ur á Evr­ópu.

Smábarn deyr eftir að því var bjargað úr heitum bíl
Kælir sig niður Barn tekst á við hitabylgjuna með því að leika sér í gosbrunni. Mynd: AFP

Annað barn lætur lífið í hitabylgjunni í Frakklandi. Smábarn fannst í heitum bíl í Marseille og var flutt á sjúkrahús þar sem það lét lífið, samkvæmt yfirvöldum í Frakklandi. 

Almannavarnir greindu frá því í dag að 18 mánaða gamalt barn hefði verið flutt á barnaspítala eftir að það fannst í bíl á bílastæði háskólasjúkrahússins La Timone á þriðjudag. Barnið var þá í lífshættulegu ástandi vegna ofhitnunar, sem verður þegar líkamshiti hækkar verulega yfir eðlileg mörk.

Fleiri börn látið lífið

Áður hafði þriggja ára drengur látið lífið eftir að það lokaðist inni í heitum bíl í bænum Saint-Gratioen. Foreldrar hans töldu að drengurinn væri að leggja sig þar til þeir fundu hann meðvitundarlausan í bílnum, þar sem hann virðist hafa lokast inni með barnalæsingu. Endurlífgunartilraunir foreldra og síðar slökkviliðs báru ekki árangur. 

Enn fyrr fundust lík tveggja barna, tveggja og fjögurra ára, í bíl fjölskyldu þeirra á bílastæði í íbúðarhverfi í bænum Carpentras í suðurhluta landsins. 

Fjöldi ungs fólks drukknað

Þá hafa að minnsta kosti 55 drukknað við að reyna að kæla sig niður í ám og vötnum, mest allt ungt fólk. Enn er óttast að fjöldi látinna muni aukast áður en yfir líkur. 

Hitamet hafa verið slegin í Frakklandi í vikunni, sem og víðar í Evrópu. Talið er að um 150 milljónir manns í álfunni þurfi að þola hita sem fer yfir 35°C í dag Enn fleiri, eða um 420 milljónir, þurfa að þola hita sem fer yfir 30°C. 

Hitabylgjan Myndir sem teknar voru með gervitungli af hitabylgjunni í Evrópu.

Meðfylgjandi mynd var tekin af hitastigi yfirborðs jarðar af Copernicus Sentinel-3 gervitunglinu miðvikudaginn 23. júní. Gögnin voru tekin síðla morguns að staðartíma.

Litirnir á myndinni ná frá fjólubláum og dökkrauðum litum (sem sýna yfirborðshita allt að 55°C, meðal annars á svæðum í miðhluta Spánar, vesturhluta Frakklands og Norður-Afríku) yfir í ljósbláa liti sem tákna lægra hitastig á fjallasvæðum. Svæði sem voru hulin skýjum eru sýnd með hvítum lit. 

Tölurnar vísa til yfirborðshita, það er að segja hita á jörðu, malbiki, sandi og svo framvegis, en ekki lofthita. Þegar fjallað er um það í fréttum að lofthitinn sé 38°C getur yfirborðshitinn á malbiki eða beru landi auðveldlega farið yfir 50°C.

Yfirborðshiti mældist hærri

Þannig mældi gervitunglið yfirborðshita upp á 48°C í Madríd, 44°C í Róm og 46°C í bæði Poitiers í Frakklandi og Zaragoza á Spáni. Í Norður-Afríku mældist enn meiri hiti á yfirborði jarðar; í Túnis náði hann 49°C.

Þar sem yfirborð eins og klettar, sandur og malbik safna í sig hita og halda honum, er hitastig á jörðu oft mun hærra en lofthitinn sem mældur er í skugga.

Sentinel-3 ber fjögur mælitæki, þar á meðal afar nákvæmt hitamælitæki sem mælir hitastig bæði á landi og hafi. Það greinir hitastreitu á landi og gögn þess eru meðal annars notuð í landbúnaði, til að fylgjast með hitahverfaáhrifum í borgum og til að vakta skógarelda.

Núverandi hitabylgja í Evrópu stafar af veðurfræðilegu mynstri þar sem þrálátur háþrýstingur myndar svokallaða hitahvelfingu. Háþrýstisvæðið situr fast yfir Evrópu á milli lágþrýstisvæða sitt hvoru megin.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
4
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár