Gagnrýna tillögur Seðlabankans harðlega

ASÍ og Sam­tök at­vinnu­lífs­ins sam­ein­ast í harð­orðri gagn­rýni á til­lög­ur Seðla­bank­ans um frum­varp um líf­eyr­is­sjóði. Hug­mynd­ir um auk­ið eft­ir­lit og hæfis­kröf­ur á lyk­il­starfs­fólk grafi und­an sátt um líf­eyri­s­kerf­ið og geti leitt til átaka á milli að­ila vinnu­mark­að­ar­ins.

Gagnrýna tillögur Seðlabankans harðlega
Gagnrýna tillögur um lífeyrissjóði Tillögur Seðlabankans um breytingar á frumvarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, mæta harðri gagnrýni aðila vinnumarkaðarins. Mynd: Golli

Hugmyndir Seðlabankans um að efla eftirlitskerfi með lífeyrissjóðum og setja auknar kröfur á stjórnir þeirra grafa undan víðtækri sátt um lífeyriskerfið.

Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn Alþýðusambandsins (ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) við frumvarp Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um lagabreytingar sem snúa að lífeyrissjóðum. Meginefni frumvarpsins snýr að því að rýmka heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga.

Seðlabankinn hefur í samráðsferli um frumvarpið lagt til að umfram það að rýmka fjárfestingaheimildir verði settar hæfiskröfur um lykilstarfsmenn sem „skulu hafa gott orðspor og viðeigandi reynslu og þekkingu“ og einnig tryggt að stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs skulu sameiginlega búa yfir „fullnægjandi hæfni, þekkingu og reynslu á viðeigandi sviðum starfsemi lífeyrissjóðs“.

Þær hugmyndir eru ítrekaðar frekar í umsögn bankans við frumvarpið, „Sú nálgun, þ.e. að auka kröfur til eftirlitskerfis lífeyrissjóða samhliða því að rýmka fjárfestingarheimildir þeirra, er í samræmi við niðurstöður úttektar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá 2023 og sérrits Seðlabankans frá 2024,“ segir í …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • NÝTIÐ YKKUR ÓKEYPIS FAGLEGAN VIÐSKIPTAAÐSTOÐ Á HELSTU MÖRKUÐUM. MERKI FYRIR GULL, OLÍU, HLUTABRÉF, FRÉTTIR OG DULMÁLSGJALDMIÐLUR ERU Í BOÐI FRÁ ALFRED (Alfredthoms).
    0
  • JAT
    Jon Arvid Tynes skrifaði
    Það er kominn tími á það að sameina alla lífeyrissjóða. 400 þús. manna þjóð hefur ekkert að gera með skóg af lífeyrissjóðum. það kostar of mikið að reka þá og spara mætti stórfé í kostnað við yfirstjórn. Auðvitað eiga eigendur sjóðanna að vera í stjórn þeirra, en gera má ríkar kröfur til stjórnenda. Misheppnaðar fjárfestingar gera kall um að stjórnendur sýni ábyrg og taki pokann sinn.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
2
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
1
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
5
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár