Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greindar runn­inn upp í banda­rískum stjórn­málum. For­set­inn birtir myndir af sér sem hetjum og and­stæð­ingum sem aulum, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­myndir sem stuðn­ings­menn hans hafa þegar sam­þykkt. Sumar mynd­irnar eru svo raun­veru­legar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú

Sem kon­ungur, páfi og Jesú, eða sem hand­hafi frið­ar­verð­launa Nóbels. Með aðstoð gervi­greindar hefur Donald Trump brugðið sér í öll þessi hlut­verk og fleiri, á myndum sem hann birtir af sjálfum sér á sam­fé­lags­miðlum. 

Nýtt tíma­bil er runnið upp þar sem for­seti Banda­ríkj­anna nýtir gervi­greind og nútíma­tækni í áróð­urs­skyni. Á sam­fé­lags­miðlum hans og Hvíta húss­ins birt­ist for­set­inn ekki aðeins sem hetja, sam­hliða gervi­greind­ar­myndum og mynd­böndum sem eru til þess fallin að nið­ur­lægja and­stæð­ing­ana, heldur er efni dreift sem inni­heldur vill­andi upp­lýs­ingar eða upp­spuna frá rótum. 

Stöðug og milliliðalaus skilaboð 

Frá því að Donald Trump hóf kosn­inga­bar­átt­una fyrir end­ur­kjöri sem for­seti hefur hann nýtt gervi­greind í póli­tískum áróðri. „Hann er að nota mjög þekktar aðferðir í áróð­urs­fræðum og ímynd­ar­sköpun,“ segir Valgeir Magn­ús­son, sér­fræð­ingur í aug­lýs­inga- og mark­aðs­málum. „Munurinn er að tæknin gerir honum kleift að gera þetta stöðugt, án milli­liða og ná beint til fólks.“

Mörgum var brugðið í febr­úar 2025 …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    If one person is King, Pope and Jesus the question arises:"who is scum"!?
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Núverandi forseti BNA er einhver mesti furðufugl stjórnmála allra tíma. En hvert hefur verið hlutverk hans fram að þessu?
    Hann er flestum ólíklegri að vera nefndur við friðarboðskap því í raun hefur hann verið fyrst og fremst í hlutverki eins stórtækasta vopnasala sögunnar sem greitt hefir götu hergagnaframleiðenda. Þeir vilja eðlilega framleiða sem mest af þessari varhugaverða varningi í stmórnlausri græðgi sinni sem sérstök ástæða er til að sýna fyllstu tortryggni.
    Og að bregða sér i hlutverk Krists, páfa eða einhvers annars er eins og hvert annað stórmennskubrjálæði manns sem telur sig vita allt miklu betur en allir aðrir.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár