Seðlabankinn hækkar vexti

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka megin­vexti bankans um 0,25 prósentu­stig og verða þeir því 7,75 prósent. Allir nefndar­menn studdu hækkunina. Bankinn segir verðbólgu­horfur hafa versnað og útilokar ekki frekari vaxta­hækkanir.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentu­stig. Megin­vextir bankans, svokallaðir stýri­vextir, verða því 7,75 prósent.

Allir nefndar­menn studdu ákvörðunina.

Í yfir­lýsingu nefndarinnar segir að verðbólga hafi verið yfir fimm prósentum það sem af er ári og mælist nú 5,2 prósent. Verðbólgu­væntingar hafi jafnframt hækkað, einkum til skamms tíma.

Nefndin bendir á að hækkun verðbólgu­væntinga frá því að stríðs­átök hófust í Mið-Austur­löndum sé þó ekki jafn mikil og í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegi þungt að spennan í þjóðar­búinu hafi þá verið töluvert meiri.

Samkvæmt nýrri spá Seðla­bankans eru horfur á minni hagvexti og meira atvinnu­leysi en bankinn spáði í febrúar. Á sama tíma hafa verðbólgu­horfur versnað vegna mikillar hækkunar olíu- og hrávöru­verðs og viðvarandi innlends verðbólgu­þrýstings.

Í yfir­lýsingunni segir að efnahags­aðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóð­legum olíu­markaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjara­samningum verður sagt upp síðar á árinu.

Peninga­stefnu­nefnd telur rétt að hækka vexti í ljósi verri verðbólgu­horfa og hárra verðbólgu­væntinga. Nefndin segist jafnframt tilbúin að herða taumhald peninga­stefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni að markmiði, þótt það gæti hægt enn frekar á efnahags­umsvifum.

Mótun peninga­stefnunnar muni sem fyrr ráðast af þróun efnahags­umsvifa, verðbólgu og verðbólgu­væntinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár