Seðlabankinn hækkar vexti

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig og verða þeir því 7,75 pró­sent. Allir nefnd­ar­menn studdu hækk­un­ina. Bankinn segir verð­bólgu­horfur hafa versnað og úti­lokar ekki frek­ari vaxta­hækk­anir.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir bank­ans, svo­kall­aðir stýri­vextir, verða því 7,75 pró­sent.

Allir nefnd­ar­menn studdu ákvörð­un­ina.

Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar segir að verð­bólga hafi verið yfir fimm pró­sentum það sem af er ári og mælist nú 5,2 pró­sent. Verð­bólgu­vænt­ingar hafi jafn­framt hækkað, einkum til skamms tíma.

Nefndin bendir á að hækkun verð­bólgu­vænt­inga frá því að stríðs­á­tök hófust í Mið-Aust­ur­löndum sé þó ekki jafn mikil og í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegi þungt að spennan í þjóð­ar­bú­inu hafi þá verið tölu­vert meiri.

Samkvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans eru horfur á minni hag­vexti og meira atvinnu­leysi en bank­inn spáði í febr­úar. Á sama tíma hafa verð­bólgu­horfur versnað vegna mik­illar hækk­unar olíu- og hrá­vöru­verðs og við­var­andi inn­lends verð­bólgu­þrýst­ings.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að efna­hags­að­stæður gætu þró­ast til verri vegar ef trufl­anir á alþjóð­legum olíu­mark­aði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjara­samn­ingum verður sagt upp síðar á árinu.

Pen­inga­stefnu­nefnd telur rétt að hækka vexti í ljósi verri verð­bólgu­horfa og hárra verð­bólgu­vænt­inga. Nefndin seg­ist jafn­framt til­búin að herða taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar til að tryggja að verð­bólga hjaðni að mark­miði, þótt það gæti hægt enn frekar á efna­hags­um­svifum.

Mótun pen­inga­stefn­unnar muni sem fyrr ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár