Stórsókn Sjálfstæðisflokksins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vann ekki aðeins sinn stærsta kosn­inga­sigur í Reykja­vík í 16 ár, heldur var hann í sókn um allt land.

Stórsókn Sjálfstæðisflokksins

Hildur Björns­dóttir leiddi Sjálf­stæð­is­flokk­inn til sig­urs í Reykja­vík, með 32,5 pró­sent atkvæða og níu borg­ar­full­trúa. „Þetta eru bestu nið­ur­stöður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í 16 ár,“ sagði hún sig­ur­reif þegar hún ávarp­aði kosn­inga­vöku Sjálf­stæð­is­flokks­ins í nótt, en flokk­ur­inn bætir við sig þremur full­trúum í borg­inni. „Nú skulu borg­ar­búar fá breyt­ingar.“

Hún er nú í lyk­il­stöðu við myndum meiri­hluta í borg­inni. Sjálf benti hún á tvo aug­ljósa kosti í stöð­unni, að mynda tveggja flokka stjórn með Mið­flokki eða þriggja flokka stjórn með Viðreisn og Fram­sókn­ar­flokki. „Ég myndi gjarnan vilja mynda sterkan meiri­hluta með breiða skírskotun til fólks­ins í borg­inni,“ sagði hún í nótt. 

Þá kvaðst hún ætla að hefja meiri­hluta­við­ræður í dag, en óform­leg sam­töl áttu sér stað í nótt. 

Mið­flokk­ur­inn fagn­aði einnig í Reykja­vík, þar sem hann náði þremur full­trúum inn í borg­ar­stjórn. Formaður flokks­ins hefur lýst gengi flokks­ins sem „póli­tískum jarð­skjálfta“. Nýtt afl sé komið í sveit­ar­stjórn­ar­málin og hafi fest sig í sessi á lands­vísu. Flokk­ur­inn náði full­trúum víða inn og var sá þriðji stærsti í borg­inni.

Í sókn á höfuðborgarsvæðinu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var í stór­sókn um allt land. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu bætti flokk­ur­inn nán­ast alls staðar við sig. 

Stærstur er flokk­ur­inn í Garðabæ þar sem hann fékk 58 pró­sent atkvæða og átta full­trúa af ell­efu. Þar bætti hann einum manni við. Flokk­ur­inn hélt einnig velli á Sel­tjarn­ar­nesi með 51,9 pró­sent atkvæða og fjóra full­trúa af sjö, jafn marga og áður. 

Í Kópavogi bætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn við tveimur mönnum og fékk sex full­trúa af ell­efu. Í Mos­fellsbæ náði flokk­ur­inn einum manni til við­bótar við það sem áður var, og fékk fimm full­trúa af ell­efu. Mið­flokk­ur­inn kom þar nýr inn með sinn full­trúa. Það gerði Mið­flokk­ur­inn einnig i Hafn­ar­firði, sem er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti mann. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Hafn­ar­firði fékk þrjá menn og Framsókn jafn marga. 

Víða með hreinan meirihluta

Á Suð­ur­landi fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn víða hreinan meiri­hluta.

Í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 69,3 pró­sent atkvæða, bætti við full­trúa og end­aði með fimm af sjö. Í Vest­manna­eyjum er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 57 pró­sent atkvæða og fimm full­trúa af níu. Í Árborg fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 52 pró­sent atkvæða og sex full­trúa af ell­efu. Í Skaft­ár­hreppi fékk hann 62,2 pró­sent atkvæða, bætti við sig tveimur full­trúum og fékk þrjá af fimm. Í Rangár­þingi eystra bætti hann við sig einum, fékk fjóra af sjö og 55,1 pró­sent atkvæða. 

Í Hvera­gerði end­ur­heimti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stöðu sína sem stærsti flokk­ur­inn. Þar fékk hann 43,9 pró­sent atkvæða og þrjá full­trúa af sjö. Horn­firð­ingar höll­uð­ust frekar í átt að Framsókn, sem var sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna þar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kom þar næstur með 26 pró­sent atkvæða.  

Á Suð­ur­nesjum bætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn við sig á flestum stöðum. Þar af þremur full­trúum í Vogum og tveimur í Reykja­nesbæ, þar sem þeir voru fimm af ell­efu. Í Grinda­vík bætti flokk­ur­inn við einum full­trúa og fékk þrjá, líkt og Framsókn. Á þessum stöðum nær flokk­ur­inn um 40 pró­sentum atkvæða. Aðeins önnur mynd blasti þó við í Suð­ur­nesjabæ, þar sem flokk­ur­inn missti mann, náði tveimur inn og fékk 25 pró­sent atkvæða. 

Stærsti flokkurinn á Akureyri

Norður á Akureyri hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn flest atkvæði með 19,4 pró­sent og tvo full­trúa af ell­efu. Fjöldi bæj­ar­full­trúa flokks­ins helst þar óbreyttur. Fjórir flokkar náðu þar tveimur full­trúum inn og gæti reynst flókið að mynda meiri­hluta.

Á Norð­ur­landi bætti flokk­ur­inn einnig við sig full­trúa í Skaga­firði og náði hreinum meiri­hluta í Húna­byggð með fimm full­trúa af níu. 

Á Akranesi hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn flest atkvæði, með 33,6 pró­sent. Þar fékk hann þrjá full­trúa af níu, líkt og áður. Framsókn missir einn full­trúa en Mið­flokk­ur­inn kemur nýr inn. Í Borg­ar­byggð bætti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn síðan við einum full­trúa og end­aði með þrjá af níu, stærsti flokk­ur­inn í því sveit­ar­fé­lagi.

Vestur á Ísafirði var Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stærstur með 34 pró­sent atkvæða, en þar á eftir kom Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem hélt sínum tveimur full­trúum. 

Þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi hlotið flest atkvæði í Fjarða­byggð þá missti hann mann og fékk þrjá full­trúa af níu. Bætti þó við sig í Múla­byggð, þar sem hann hlaut einnig flest atkvæði og fékk fjóra full­trúa af ell­efu. 

„Mig grun­aði að kvöldið yrði gott en að það yrði svona stór­kost­legt eins og raunin er, það er mjög ánægju­legt,“ sagði for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guðrún Haf­steins­dóttir, á kosn­inga­vöku RÚV í nótt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár