Spenna eykst á hernumdum svæðum: Ísraelskir landnemar styrkja stöðu sína

Hópur ísra­el­skra land­nema var sóttur yfir til Sýrlands, þar sem hann hugð­ist nema land. Á sama tíma sækja þeir stíft að Palest­ínu­mönnum og telja sig hafa stuðn­ing stjórn­valda til þess.

Spenna eykst á hernumdum svæðum: Ísraelskir landnemar styrkja stöðu sína

Spenna á milli Ísraela og Palest­ínu­manna heldur áfram að aukast, en síð­ustu daga hafa bæði ofbeld­is­at­vik á Vest­ur­bakk­anum og umdeildar aðgerðir ísra­el­skra land­nema og stjórn­valda vakið hörð við­brögð.

Á þriðju­dag lét­ust tveir Palest­ínu­menn, þar á meðal 14 ára drengur, í skot­hríð í þorp­inu Al-Mug­hayyir fyrir miðju her­num­ins Vest­ur­bakk­ans. Palest­ínsk yfir­völd segja að ísra­elskir land­nemar hafi skotið á íbúa, en ísra­elski her­inn seg­ist vera að rann­saka málið og vísar til þess að skot­hríðin hafi átt sér stað í kjöl­far grjót­kasts á ísra­elskt öku­tæki.

Vitni á staðnum halda því fram að land­nemar hafi ráð­ist að skóla í þorp­inu og hafið skot­hríð, en að her­menn hafi síðan tekið þátt í átök­unum. Á sjúkra­húsi í Ramallah söfn­uð­ust syrgj­andi ætt­ingjar að lík­unum, sem voru sveipuð palest­ínskum fánum.

Ofbeldi af þessu tagi hefur auk­ist veru­lega frá því að Hamas réðst á Ísrael þann 7. októ­ber 2023, sem mark­aði upp­haf stríðs­ins á Gaza. Samkvæmt …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu