Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu

Ör­ygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna greið­ir lík­lega at­kvæði í dag um út­þynnta til­lögu Persa­flóa­ríkja um að sér­hverju landi verði heim­ilt að beita hervaldi til að opna fyr­ir sigl­ing­ar um Horm­ússund. Olíu­verð hef­ur snar­hækk­að eft­ir að Ír­an­ir svo gott sem lok­uðu sund­inu eft­ir árás­ir Banda­ríkj­anna og Ísra­els á land­ið.

Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu
Öryggisráðið Lönd sem eiga fast sæti í öryggisráðinu – og þar með neitunarvald – hafa ekki verið á bandi Persaflóaríkjanna í málinu. Mynd: EPA

Búist er við að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiði atkvæði í dag um útvatnaða ályktun þar sem kallað er eftir því að Hormússund verði opnað. Tillagan er langt frá upphaflegu markmiði Persaflóaríkjanna sem standa að henni, um að fá heimild til að opna siglingaleiðina með valdi.

Atkvæðagreiðslan er áætluð klukkan þrjú í dag, þótt niðurstaðan sé ekki vís. Texti ályktunarinnar hefur verið þynntur út undanfarna daga í von um að koma í veg fyrir að henni verði hafnað. Í drögum sem AFP sá í gær er ekki lengur minnst á heimild til valdbeitingar – ekki einu sinni í varnarskyni.

Atkvæðagreiðslan fer fram aðeins nokkrum klukkustundum áður en frestur sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna gaf Íran til að að opna sundið eða eiga á hættu að bandaríski herinn eyðileggi orkuver og brýr landsins. Fresturinn rennur út á miðnætti. 

Stjórnvöld í Barein, með stuðningi Bandaríkjanna og annarra olíuútflutningsríkja við Persaflóa, hófu samningaviðræður fyrir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
2
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.
„Fólk er hrætt”
4
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
5
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
6
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár