Noregur lækkar skatta vegna orkukreppunnar

Eldsneyt­is­skatt­ar verða lækk­að­ir tíma­bund­ið í Nor­egi, en á Ís­landi vilja stjórn­völd ekki bregð­ast við orkukrepp­unni með lækk­un á álög­um.

Noregur lækkar skatta vegna orkukreppunnar
Norrænir forsætisráðherrar Noregur og Svíþjóð lækka eldsneytisskatta vegna stríðsins í Íran. Mynd: AFP

Noregur mun tímabundið lækka skatta á bensín og dísilolíu til að bregðast við hækkandi verði þar sem stríðið í Miðausturlöndum truflar orkuframboð á heimsvísu, að því er ríkisstjórnin greindi frá í dag.

Frá og með 1. apríl verður skattur á bensín lækkaður um 4,41 norskar krónur (56,6 íslenskar krónur) á lítra og á lítra af dísilolíu um 2,85 norskar krónur (36,6 íslenskar krónur), sagði ríkisstjórnin í yfirlýsingu.

Nú þegar hafa Svíar tilkynnt um takmarkaða og tímabundna skattalækkun á eldsneyti. Sama er þó ekki uppi á teningnum á Íslandi.

Ríkisstjórnin klofnar

Norska þingið greiddi atkvæði með lækkuninni þann 26. mars, þrátt fyrir að ríkisstjórnin væri á móti tillögunni og endaði í minnihluta í málinu þar sem einn af fimm flokkum í stjórnarsamstarfinu – Miðflokkurinn – greiddi atkvæði með stjórnarandstöðunni.

„Samkomulag um fjárlög er gert til að virða það,“ sagði Jens Stoltenberg fjármálaráðherra, úr Verkamannaflokknum sem var á móti tillögunni, við ríkisútvarpið NRK.

„Við þurfum að setjast niður með samstarfsflokkum okkar og tryggja að svona staða komi ekki upp aftur,“ sagði hann.

Skattalækkanirnar eiga einnig við um steinolíur sem notaðar eru við fiskveiðar og veiðar, sagði ríkisstjórnin.

Þingið áætlaði að skattalækkunin myndi kosta um 6,3 milljarða norskra króna eða sem nemur 80 milljörðum íslenskra króna.

Leiðandi í rafbílavæðingu

Noregur, stærsti olíu- og gasframleiðandi Evrópu á eftir Rússlandi, er með flesta rafbíla á mann í heiminum, en þeir voru um 32 prósent af bílaflota landsins í desember 2025. Til samanburðar eru aðeins 9% bifreiða á Íslandi rafbílar, þrátt fyrir að Ísland framleiði enga olíu og notist nánast eingöngu við endurnýjanlega orku utan samgangna.

Dísilbílar voru 31,8 prósent af flotanum í Noregi, samanborið við 23,9 prósent fyrir bensínbíla og 12,6 prósent fyrir ýmsa tvinnbíla.

Nán­ast all­ir ný­skráð­ir bíl­ar í Nor­egi 2025 voru raf­magns­bíl­ar, en á Ís­landi var hlut­fall­ið að­eins 34%.

Ríkisstjórn Spánar tilkynnti í síðustu viku um lækkun orkutengdra skatta til að bregðast við „sérstökum aðstæðum“ sem mynduðust við Íransstríðið og skert framboð olíu vegna þess.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki viljað lækka álögur á eldsneyti vegna orkukreppunnar. Líklegt er að verðbólga aukist vegna hækkandi olíuverðs, en vegna séraðstæðna á íslenskum húsnæðislánamarkaði mun verðbólga leiða til þess að lán flestra húsnæðiseigenda hækka með verðtryggingu.

„Nei, við höfum ekki verið að skoða það. Við erum auðvitað í samtali um aðgerðir með aðilum vinnumarkaðarins en þetta hefur ekki verið uppi á borðinu eins og er,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra við RÚV í síðustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Veröld valdsins eftir fall hugsjónanna
Greining

Ver­öld valds­ins eft­ir fall hug­sjón­anna

Benja­mín Net­anja­hú seg­ir að Jesús Krist­ur hafi ekki haft neitt fram yf­ir Geng­is Kh­an. „Það er ekki nóg að gera sið­ferð­is­lega rétt,“ seg­ir hann og boð­ar stríð við „villi­menn“. Geir H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands, lýs­ir því að hug­sjón­irn­ar séu falln­ar og að Ís­lend­ing­ar þurfi að „liggja lágt“ gagn­vart Banda­ríkj­un­um vegna valds þeirra.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
2
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
4
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár