Kynnir Óskarsverðlaunanna, grínistinn Conan O’Brien, gaf tóninn strax í upphafi. „Ég vara ykkur við, þetta gæti orðið pólitískt í kvöld,“ sagði hann þegar hann opnaði athöfnina, sem fram fór í nótt. „Ef það veldur ykkur óþægindum er önnur Óskarsverðlaunahátíð í boði Kid Rock á Dave & Buster’s hérna niðri í götu.“
Vísaði hann til sérstakrar hálfleikssýningar Ofurskálarinnar sem skipulögð var með tónlistarmanninum Kid Rock vegna óánægju íhaldsmanna í Bandaríkjunum með tónlistaratriði Bad Bunny, frá Púertó Ríkó, í úrslitaleik bandarísku fótboltadeildarinnar.
Óskarsverðlaunahöfninni, sem er stærsta verðlaunahátíð kvikmyndaiðnaðarins í Bandaríkjunum, var sjónvarpað víða um heim og margir sem stigu á svið nýttu tækifærið til að vísa til þeirrar vaxandi spennu sem er í alþjóðamálum og átaka sem nú eiga sér stað víða í heiminum.
Meðal þeirra var leikstjórinn Paul Thomas Anderson, sem tók við verðlaunum fyrir besta handrit byggt á áður útgefnu efni. Í þakkarræðu sinni tengdi hann efni myndarinnar við áhyggjur …
















































Athugasemdir (1)