Nýttu Óskarssviðið til að ávarpa heiminn: „Nei við stríði – frjáls Palestína“

Póli­tísk um­mæli og til­vís­an­ir í ástand heims­mála settu svip á Ósk­ar­s­verð­launa­há­tíð­ina sem fór fram í Dol­by-leik­hús­inu í Hollywood í nótt.

Nýttu Óskarssviðið til að ávarpa heiminn: „Nei við stríði – frjáls Palestína“
Frelsi Indverska leikkonan Priyanka Chopra og spænski leikarinn Javier Bardem afhentu verðlaunin fyrir bestu alþjóðlegu kvikmyndina á 98. Óskarsverðlaunahátíðinni í Dolby-leikhúsinu í Hollywood í Kaliforníu í nótt. Bardem kallaði eftir frjálsri Palestínu. Mynd: Patrick T. Fallon / AFP

Kynnir Óskarsverðlaunanna, grínistinn Conan O’Brien, gaf tóninn strax í upphafi. „Ég vara ykkur við, þetta gæti orðið pólitískt í kvöld,“ sagði hann þegar hann opnaði athöfnina, sem fram fór í nótt. „Ef það veldur ykkur óþægindum er önnur Óskarsverðlaunahátíð í boði Kid Rock á Dave & Buster’s hérna niðri í götu.“

Vísaði hann til sérstakrar hálfleikssýningar Ofurskálarinnar sem skipulögð var með tónlistarmanninum Kid Rock vegna óánægju íhaldsmanna í Bandaríkjunum með tónlistaratriði Bad Bunny, frá Púertó Ríkó, í úrslitaleik bandarísku fótboltadeildarinnar. 

Óskarsverðlaunahöfninni, sem er stærsta verðlaunahátíð kvikmyndaiðnaðarins í Bandaríkjunum, var sjónvarpað víða um heim og margir sem stigu á svið nýttu tækifærið til að vísa til þeirrar vaxandi spennu sem er í alþjóðamálum og átaka sem nú eiga sér stað víða í heiminum.

Meðal þeirra var leikstjórinn Paul Thomas Anderson, sem tók við verðlaunum fyrir besta handrit byggt á áður útgefnu efni. Í þakkarræðu sinni tengdi hann efni myndarinnar við áhyggjur …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Frábært að nota þennan vettvang til að lýsa yfir andstöðu við stríðum, þjóðarmorðum, ofbeldi af öllu tagi við fólk/dýr/náttúru og sóun og umhverfisspjöllum. Veröldin þarf á röddum sem flestra til að ná til margra/allra um þessi mál. Meira svona.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
2
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
4
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár