Ingibjörg Dögg fékk Blaðamannaverðlaunin fyrir viðtal ársins

Rit­stjóri Heim­ild­ar­inn­ar, Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dótt­ir, fékk Blaða­manna­verð­laun Ís­lands fyr­ir við­tal árs­ins fyr­ir við­tal við for­seta Ís­lands.

Ingibjörg Dögg fékk Blaðamannaverðlaunin fyrir viðtal ársins
Verðlaun Ingibjörg Dögg tók við verðlaununum í Hafnarhúsi í kvöld. Mynd: Golli

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Heimildarinnar, hlaut í dag Blaðamannaverðlaunin fyrir viðtal ársins. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsi í kvöld. 

Verðlaunin fékk Ingibjörg fyrir viðtal sitt við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Viðtalið var tekið yfir nokkurra daga tímabil og veitti lesendum nýja sýn á bæði embættið og persónuna á bak við það. Í viðtalinu sagði Halla meðal annars frá sársaukafullri reynslu úr barnæsku og kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir, og hvernig sú reynsla hefur mótað líf hennar.

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna lagði áherslu á að viðtalið bæri með sér mikilvæg skilaboð til þolenda kynferðisofbeldis um að slík reynsla þurfi ekki að skilgreina líf þeirra til framtíðar.

Verðlaun voru veitt í fleiri flokkum. Blaðamannaverðlaun ársins hlaut Kjartan Kjartansson hjá Sýn fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísi. Þar var sérstaklega nefnt hvernig hann útskýrði flókin málefni á mannamáli án þess að slaka á faglegum kröfum. Umfjöllun hans leiddi meðal annars í ljós misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiðum Íslands í samstarfi við Evrópusambandið og varð til þess að stjórnvöld endurskoðuðu markmið sín vegna Parísarsamningsins.

Verðlaun fyrir umfjöllun ársins hlutu Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson hjá RÚV fyrir ítarlega umfjöllun í þættinum Kveik um alvarlega e. coli-matarsýkingu sem kom upp í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík.

Þá hlutu Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson hjá RÚV Blaðamannaverðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem áttu sér stað haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Í umfjölluninni var meðal annars fjallað um hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart honum.

Blaðamannaverðlaunin eru veitt árlega til að heiðra framúrskarandi blaðamennsku á Íslandi og eru veitt í fjórum flokkum. Í dómnefnd að þessu sinni sátu Pálmi Jónasson, formaður, ásamt Arndísi Þorgeirsdóttur, Brynhildi Ólafsdóttur og Steinunni Stefánsdóttur.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Til hamingju öll, meira svona.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Vel gert, til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Fann leiðina úr myrkri sorgarinnar
2
Viðtal

Fann leið­ina úr myrkri sorg­ar­inn­ar

Jón­as Kwei Ting Sen seg­ir skoð­un sína um­búða­laust og við­ur­kenn­ir að sjá stund­um eft­ir því sem hann hef­ur skrif­að. Nafn kín­versks afa hans, Kwei Ting, merk­ir „hinn heið­ar­legi“ og það hef­ur Jón­as ætíð að leið­ar­ljósi. Að baki bein­skeyttri ímynd býr saga sem fá­ir þekkja til fulls. Snemma á lífs­leið­inni briller­aði hann sem pí­anó­leik­ari og tón­skáld, en á bak við tón­list­ina er saga af einelti og botn­lausri sorg, stór­brotn­um æv­in­týr­um og and­legri leit sem hef­ur far­ið með hann um djúpa dali, í dul­speki, hug­leiðslu og að lok­um í faðm kaþ­ólsku kirkj­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
1
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“
Ljóðskáld í súlufitness og kynlífsþjónustu á netinu
2
Innlent

Ljóð­skáld í súlu­fit­n­ess og kyn­lífs­þjón­ustu á net­inu

Bryn­hild­ur María Ragn­ars­dótt­ir er í meist­ara­námi, hef­ur skrif­að ljóð og fyrsta skáld­sag­an er í vinnslu. Á und­an­förn­um ár­um hef­ur hún einnig starf­að sem súlu­dans­ari og veitt kyn­lífs­þjón­ustu á net­inu. Þótt hún verði vör við for­dóma sumra hef­ur þetta veitt henni auk­ið sjálfs­traust. „Loks­ins var ég með regl­ur og stjórn yf­ir sjálfri mér.“
Styrkur ullarinnar kom á óvart
6
Viðtal

Styrk­ur ull­ar­inn­ar kom á óvart

Hönn­uð­ur­inn Hanna Dís Whitehead lenti í því að þurfa að bíða lengi eft­ir birgð­um fyr­ir hönn­un sína með­an á al­heims­far­aldri stóð fyr­ir nokkr­um ár­um. Í þeirri bið varð henni lit­ið í kring­um sig fyr­ir ut­an vinnu­stof­una sína aust­ur í Horna­firði og velti fyr­ir sér af hverju hún væri ekki að nýta bet­ur efni­við úr nærum­hverfi sínu. Við það kvikn­aði sú hug­mynd sem hún vinn­ur með þessa dag­ana, sem er að hann hús­gögn úr þæfðri ull.

Mest lesið í mánuðinum

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
6
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár