Carney leitar til Evrópu nú þegar samskipti við Bandaríkin versna

Mark Carney, forsætis­ráðherra Kanada, vill dýpka efnahags- og öryggis­tengsl við Evrópu á sama tíma og viðskipta­deilur við Banda­ríkin hafa harðnað. Á döfinni er að hefja viðræður um „mun sterkara og dýpra efnahags- og öryggis­samstarf“.

Skraf og ráðagerðir
Skraf og ráða­gerðir Ursula von der Leyen og Mark Carney hafa átt í auknum sam­skiptum að und­an­förnu. Carney verður við­staddur þegar von der Leyen flytur stefnu­ræðu sína um stöðu Evr­ópu­sam­bands­ins á Evr­ópu­þing­inu í vik­unni. Mynd: AFP

Mark Carney, forsætis­ráðherra Kanada, hefur kallað landið „evrópskasta ríkið utan Evrópu“. Þótt formleg aðild að Evrópu­sambandinu kunni að reynast flókin sækist hann nú eftir nánari tengslum við sambandið en nokkru sinni áður, meðal annars til að draga úr því hversu háð Kanada er Banda­ríkjunum.

Carney heldur til Strassborgar í Frakk­landi í þessari viku. Þar verður hann viðstaddur árlega ræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, um stöðu sambandsins, áður en hann ávarpar sjálfur Evrópu­þingið daginn eftir.

Hann mun einnig ferðast til Liverpool, þar sem hann mun eiga sinn fyrsta fund með Andy Burnham, nýjum forsætis­ráðherra Bretlands.

Heim­sóknin er „gríðar­lega táknræn“, að sögn Tobias Cremer, þýsks Evrópuþing­manns sem fór fyrir ályktun frá því í mars þar sem kallað var eftir auknu samstarfi Evrópu­sambandsins og Kanada.

„Kanada býr yfir mörgum þeim auðlindum sem Evrópu skortir verulega, hvort sem það er orka, sjaldgæfir jarð­málmar eða önnur hráefni,“ …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár