Húsleit hjá Telenor vegna gruns um mannréttindabrot í Mjanmar

Norska fjar­skipta­fé­lagið Telenor er til rann­sóknar vegna gruns um hlut­deild í glæpum gegn mann­kyni og mögu­legra brota á refsi­að­gerðum í tengslum við starf­semi og sölu dótt­ur­fé­lags fyr­ir­tæk­is­ins í Mjanmar. Telenor er að stærstum hluta í eigu norska rík­is­ins.

Húsleit hjá Telenor vegna gruns um mannréttindabrot í Mjanmar
Stórt Fólk beið í röð eftir að kaupa SIM-kort þegar Telenor Myanmar hóf starf­semi í land­inu árið 2014. Félagið var komið með meira en 18 millj­ónir við­skipta­vina árið 2021. Mynd: Ye Aung Thu / AFP

Norsk yfir­völd greindu frá því í dag að gerð hefði verið hús­leit í höf­uð­stöðvum norska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Telenor. Félagið er grunað um hlut­deild í glæpum gegn mann­kyni í Mjanmar.

Við­skipta­vinir fyrr­ver­andi dótt­ur­fé­lags Telenor í Mjanmar, Telenor Myanmar (TML), höfð­uðu mál gegn fyr­ir­tæk­inu fyrr á þessu ári vegna þess að við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum þeirra hefði verið deilt með her­for­ingja­stjórn lands­ins.

Þeir halda því fram að upp­lýs­ing­arnar hafi verið not­aðar til að bera kennsl á, hand­taka og sækja til saka lýð­ræð­is­sinna sem grun­aðir voru um að standa gegn hernum í Mjanmar.

Norska rann­sókn­ar­lög­reglan Kripos og norska örygg­is­lög­reglan PST hafa hafið tvær aðskildar rann­sóknir á Telenor, að sögn lög­reglu.

Kripos rann­sakar Telenor vegna gruns um hlut­deild í glæpum gegn mann­kyni á tíma­bil­inu frá 1. febr­úar 2021 til 25. mars 2022.

Tíma­bilið nær frá þeim degi þegar her­inn framdi valda­rán gegn rík­is­stjórn Aung San Suu Kyi í Mjanmar og þar …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár