Hugveitan Heritage Foundation hefur stóraukið áhrif sín í Evrópu á síðustu tólf mánuðum, samkvæmt greiningu bandarísku stjórnmálafréttasíðunni Politico. Þar var greint frá því í nóvember síðastliðnum að hugveitan hefði átt fjölmarga einkafundi við áhrifafólk í fjarhægriflokkum frá meðal annars Ungverjalandi, Tékklandi, Spáni, Frakklandi og Þýskalandi. Síðasta árið hefur hugveitan einnig átt sjö fundi með meðlimum Evrópuþingsins miðað við einn fund á síðustu fimm árum þar á undan. Markmiðið er að innræta hugmyndafræði MAGA í sem flesta stjórnmálaflokka í Evrópu undir formerkjunum MEGA, eða „Make Europe Great Again“ og að lagasetningar í samræmi við gildi MAGA verði lagðar fram og samþykktar.
Sami farastjóri í báðum ferðum
Á þennan lista bætast nú Íslendingar en Miðflokkurinn fór á fund með Heritage Foundation og greindi þingmaður flokksins, Sigríður Á. Andersen, frá því á samfélagsmiðlum. Sjálfstæðisflokkurinn fór einnig í ferð á vegum sama fyrirtækis, en forsvarsmaður þess, Zachary Freeman, hefur einnig unnið Nigel Farage. Ekki …















































Athugasemdir