Stefnt er að því að þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju fari fram 29. ágúst. Þetta var kynnt á blaðamannafundi í stjórnarráðinu í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lagði þingsályktun þess efnis fram í ríkisstjórn í morgun, sem var samþykkt samhljóða.
„Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu,“ verður spurningin og hægt að svara henni já eða nei.
„Við vorum að klára hundraðasta fund þessarar ríkisstjórnar,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þegar hún hóf blaðamannafundinn. Ísland stæði bæði sterkt efnahagslega en líka þegar kæmi að sjálfsmynd þjóðarinnar.
Sterk samningsstaða
„Við ætlum að leita leiðsagnar hjá þjóðinni,“ sagði hún og minnti á að það hafi verið ákveðið í stjórnarsáttmála. „Af hverju núna? Staðreyndin er sú að samningsstaða okkar, að okkar mati, er góð núna.“
Verði samið um aðild verður sá samningur svo borinn undir þjóðina. Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst aðeins um hvort taka …















































Athugasemdir