Innlagnir vegna áfengistengdra sjúkdóma hefur kostað íslenska ríkið 11 milljarða króna á síðustu sautján árum að því er fram kemur í Læknablaðinu. Þetta kemur fram í rannsókn sem Engilberts Sigurðssonar, prófessors við lagadeild Háskóla Íslands, skrifar leiðara um í blaðið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar er að áfengistengdum innlögnum á Landspítalann fjölgar jafnt og þétt og hefur gert á árabilinu 2005 til 2022 og er sá tími sem rannsóknin tekur til. Það voru Kristín Fjóla Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir og Einar S. Björnsson sem stóðu að henni.
Algengustu ástæður innlagna í rannsókninni voru geð- og atferlisraskanir en Engilbert er jafnframt sérfræðingur í geðlækningum og yfirlæknir við geðþjónustu Landspítalans. Sömuleiðis eru áfengistengdir lifrarsjúkdómar algengir, briskirtilsbólga og sjúkdómar í taugakerfinu. Þá er ótalið að áfengi er skýr orsakaþáttur í sjö mismunandi tegundum krabbameina.
Rannsóknin sýnir 88 prósent aukningu í nýgengi innlagna fyrir hverja 100 þúsund íbúa á ári á þessum sautján árum.
















































"Rannsóknin sýnir 88 prósent aukningu í nýgengi innlagna fyrir hverja 100 þúsund íbúa á ári á þessum sautján árum."
Mig langar til að spyrja þá manneskju sem skrifaði þennan teksta hvort viðkomandi átti sig á því að 88 prósent aukningin er óháð því hvort maður miðar við hverja 10, 100, 1000 eða 410 þúsund íbúa. Hlutfallið er alltaf það sama. Það er farið yfir þessi fræði í frammhaldsskólum og jafnvel grunnskólum.