Áfengistengdar innlagnir kostað 11 milljarða

Áfeng­is­tengdar inn­lagnir á sjúkra­hús hafa kostað ríkið 11 millj­arða króna á síð­ustu sautján árum sam­kvæmt rann­sókn sem var birt í nýjasta hefti Lækna­blaðs­ins.

Áfengistengdar innlagnir kostað 11 milljarða
Áfeng­is­neysla eykst Áfeng­is­neysla á Íslandi eykst sam­hliða auknum kostn­aði, bæði fjár­hags­legan og sam­fé­lags­legan. Mynd: Pexels

Inn­lagnir vegna áfeng­is­tengdra sjúk­dóma hefur kostað íslenska ríkið 11 millj­arða króna á síð­ustu sautján árum að því er fram kemur í Lækna­blað­inu. Þetta kemur fram í rann­sókn sem Eng­il­berts Sig­urðs­sonar, pró­fess­ors við laga­deild Háskóla Íslands, skrifar leið­ara um í blaðið. Helstu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar er að áfeng­is­tengdum inn­lögnum á Land­spít­al­ann fjölgar jafnt og þétt og hefur gert á ára­bil­inu 2005 til 2022 og er sá tími sem rann­sóknin tekur til. Það voru Kristín Fjóla Jóns­dóttir, Hildur Jóns­dóttir og Einar S. Björns­son sem stóðu að henni.

Algeng­ustu ástæður inn­lagna í rann­sókn­inni voru geð- og atferl­is­rask­anir en Eng­il­bert er jafn­framt sér­fræð­ingur í geð­lækn­ingum og yfir­læknir við geð­þjón­ustu Land­spít­al­ans. Sömu­leiðis eru áfeng­is­tengdir lifr­ar­sjúk­dómar algengir, bris­kirtils­bólga og sjúk­dómar í tauga­kerf­inu. Þá er ótalið að áfengi er skýr orsaka­þáttur í sjö mis­mun­andi teg­undum krabba­meina.

Rann­sóknin sýnir 88 pró­sent aukn­ingu í nýgengi inn­lagna fyrir hverja 100 þús­und íbúa á ári á þessum sautján árum.

…
Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Aðeins um prósentur (hlutföll)!
    "Rannsóknin sýnir 88 prósent aukningu í nýgengi innlagna fyrir hverja 100 þúsund íbúa á ári á þessum sautján árum."
    Mig langar til að spyrja þá manneskju sem skrifaði þennan teksta hvort viðkomandi átti sig á því að 88 prósent aukningin er óháð því hvort maður miðar við hverja 10, 100, 1000 eða 410 þúsund íbúa. Hlutfallið er alltaf það sama. Það er farið yfir þessi fræði í frammhaldsskólum og jafnvel grunnskólum.
    0
  • Kristjana Magnusdotir skrifaði
    Fólkvirðisthafanógafmonningunumþegaráfengiðerannarsvegarsvoferauðvitaðrestinibílskrjóðinnhúsbondannsáheimilinuenhvaðsvomeðhinafjölskyldumeðliminaáheimilinu aumingjaþaufolkið verðuraðtreystaáhinaættíngjanatilþessaðlifafafræfilstuskurnarþærarna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár