Hvalskipin ekki mátt sigla síðan í júní 2024

Haf­færis­skír­teini fyr­ir Hval 8 og Hval 9 runnu út í júní 2024. Sam­göngu­stofa tjá­ir sig ekki um hvort um­sókn um haf­færi hafi ver­ið lögð fram fyr­ir skip­in. Eng­ir hval­ir hafa ver­ið veidd­ir þrátt fyr­ir um­deilda leyf­is­veit­ingu og óvíst er hvernig fer með veið­ar á kom­andi tíma­bili.

Hvalskipin ekki mátt sigla síðan í júní 2024
Langreyðar voru síðast veiddar við Ísland árið 2023, ekkert varð af vertíðum síðustu tvö sumur. Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 eru ekki með gild haffærisskírteini samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu og hafa ekki verið um nokkurt skeið. Síðast voru skipin með gild haffærisskírteini í júní 2024 – Hvals 8 rann út 19. júní 2024 en Hvals 9 þann 12. júní.

Það er Samgöngustofa sem gefur skírteinin út en öll skip sem leggja úr höfn þurfa að hafa gild haffærisskírteini. Eins og staðan er geta skipin því ekki siglt á haf út og haldið til veiða, þegar ný hvalveiðivertíð hefst í vor, en skipin tvö eru þau sem nýtt hafa verið við veiðar síðustu ára.

„Útgáfa haffæriskírteinis felur í sér staðfestingu á að skip sé öruggt til siglinga og uppfylli gildandi öryggiskröfur. Það byggir á útgefnum skipspappírum og niðurstöðum nauðsynlegra skoðana sem skip þarf að undirgangast samkvæmt ákvæðum íslenskra laga og reglugerða,“ segir í svari Samgöngustofu til Heimildarinnar. 

Lengd ferlis velti á skoðunum

Ekki fengust svör …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár