Verðbólgan á niðurleið í Evrópu en uppleið á Íslandi

Mæl­ing á sam­ræmdri vísi­tölu neyslu­verðs sýn­ir að verð­bólga á evr­ópska efna­hags­svæð­inu er á nið­ur­leið á sama tíma og hún er á upp­leið á Ís­landi. Rúm­lega tvö­falt hærri verð­bólga er á Ís­landi en í Evr­ópu.

Verðbólgan á niðurleið í Evrópu en uppleið á Íslandi
Hærra Matur og óáfengir drykkir hafa hækkað um 5,9 prósent á Íslandi, samkvæmt samræmdu mælingunni, en um 2,9 prósent síðustu 12 mánuði á Evrópska efnahagssvæðinu. Mynd: Golli

Samræmd vísitala neysluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu í janúar 2026 lækkaði um 0,3 prósent í janúar frá fyrri mánuði. Á einu ári hefur vísitalan hækkað um 2 prósent. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar, sem heldur utan um mælingu og birtingu samræmdu vísitölunnar.

Á Íslandi mældist verðbólga 4,4 prósent í janúar, samkvæmt þessari samræmdu aðferð, og hefur hún farið hækkandi tvo mánuði í röð. Samkvæmt mælingunni er það aðeins í Rúmeníu sem verðbólga mælist meiri en á Íslandi á Evrópska efnahagssvæðinu.

Ísland er á pari við Slóvakíu, þar sem verðbólga mælist 4,3 prósent. Annars staðar á Norðurlöndum mælist verðbólga, samkvæmt þessum samræmda mælikvarða, á bilinu 0,6 prósent – í Danmörku – til 3,5 prósent – í Noregi. 

Verðbólguþróun í Evrópu síðustu mánuði er á skjön við Ísland. Verðbólgan hefur hjaðnað í hverjum mánuði síðustu sex mánuði og er lægri nú en á sama tíma í fyrra. Á Íslandi hefur hún hins vegar sveiflast töluvert og mælist nú bæði hærri en fyrir sex mánuðum og á sama tíma í fyrra. 

Samkvæmt mælingunni hafa allir undirliðir verðbólgunnar hækkað meira á Íslandi en meðaltal Evrópska efnahagssvæðisins, ef frá er talinn húsbúnaður, heimilistæki, og þjónusta tengd reglubundnu viðhaldi heimila annars vegar og kostnaður vegna menntunar hins vegar. 

Þannig hefur matur og óáfengir drykkir hækkað um 5,9 prósent yfir tólf mánaða tímabil á Íslandi en um 2,9 prósent að meðaltali í Evrópu á sama tíma. Húsnæði, vatn, rafmagn og aðrir orkugjafar, eins og þeir eru flokkaðir í mælingunni, hefur hækkað um 6,8 prósent á Íslandi en 1,3 prósent í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár