Stigmagnandi átök eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hafa á örfáum dögum valdið miklum sviptingum á alþjóðlegum orkumörkuðum. Olíu- og gasverð hefur hækkað hratt, flutningsleiðir raskast og hlutabréfamarkaðir víða um heim hafa lækkað.
Þótt bein áhrif hér á landi séu enn takmörkuð eru vísbendingar um að þróunin geti haft víðtæk áhrif á verðlag og skuldir íslenskra heimila.
„Á meðan heimurinn fylgist með stigmagnandi átökum í Miðausturlöndum sitja íslensk heimili uppi með afleiðingarnar – í formi hækkandi skulda,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, á Facebook.
Hann bendir á að hækkandi olíuverð leiði til hærri flutningskostnaðar og aðföng hækki í verði sem smitist út í verðlag. Þegar neysluvísitalan hækki hækki verðtryggðar skuldir sjálfkrafa.
Alþjóðlegir markaðir bregðast hart við
Á það sama benti Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs á í samtali við Vísi, þar sem hann sagði að málið snérist um meira en bensínverð á dælunum, „heldur hvaða áhrif þetta …















































Athugasemdir