Davíð Oddsson látinn

Dav­íð Odds­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, borg­ar­stjóri og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, lést á heim­ili sínu á sunnu­dag.

Davíð Oddsson látinn
Áhrifavaldur Davíð var sannarlega áhrifavaldur í íslensku samfélagi, sem borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og síðar ritstjóri Morgunblaðsins. Mynd: 365/Anton Brink

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður Íslands á síðustu áratugum, er látinn, 78 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í gær. Greint var frá andlátinu í Morgunblaðinu.

Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948 og hóf stjórnmálaferil sinn snemma. Hann var kjörinn í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1974 og gegndi embætti borgarstjóra frá 1982 til 1991. Síðan var hann formaður Sjálfstæðisflokksins, kjörinn á þing og varð forsætisráðherra 1991, embætti sem hann gegndi til 2004. Eftir það var hann utanríkisráðherra í eitt ár.

Sem bæði borgarstjóri og forsætisráðherra stóð Davíð fyrir umtalsverðum breytingum á íslensku samfélagi með einkavæðingu ríkisfyrirtækja og breytingum á umhverfi fyrirtækja í anda frjálshyggju Margretar Thatcher.

Árið 2005 var Davíð skipaður seðlabankastjóri og gegndi þeirri stöðu til 2009, í gegnum allsherjar fjármálahrun. Var hann nefndur á lista bandaríska Time tímaritsins sem einn 25 einstaklinga sem mesta ábyrgð báru á fjármálahruninu.

Úr Seðlabankanum lá leið hans í ritstjórastól Morgunblaðsins, þar sem hann starfaði fram á síðustu daga.

Davíð Oddsson var bæði dáður og umdeildur; hann átti stóran þátt í að móta íslenska stjórnmála- og efnahagsumhverfið á seinni hluta 20. aldar og byrjun 21. aldar. 

Eftirlifandi eiginkona hans er Ástríður Thorarensen. Davíð lætur einnig eftir sig son, tengdadóttur og tvö barnabörn. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár