Pakistan í „opnu stríði“ við talíbanastjórnina í Afganistan

„Þol­in­mæði okk­ar er á þrot­um. Nú er op­ið stríð á milli okk­ar og ykk­ar,“ sagði pak­ist­anski varn­ar­mála­ráð­herr­ann Khawaja Asif. Sprengj­um var varp­að á Af­gan­ist­an í nótt eft­ir mán­að­a­löng átök í kring­um landa­mæri Pak­ist­an og Af­gan­ist­an.

Pakistan í „opnu stríði“ við talíbanastjórnina í Afganistan
Opið stríð Öryggisverðir Talíbana standa vörð nálægt Torkham-landamærastöðinni milli Afganistan og Pakistan í Nangarhar-héraði í morgun. Pakistan gerði loftárásir á stórar borgir í Afganistan, þar á meðal höfuðborgina Kabúl, í nótt. Varnarmálaráðherra Íslamabad lýsti því yfir að nágrannarnir væru í „opnu stríði“ eftir margra mánaða átök ríkjanna. Mynd: AIMAL ZAHIR / AFP

Pakistan gerði sprengjuárásir á stórar borgir í Afganistan, þar á meðal höfuðborgina Kabúl, í morgun. Varnarmálaráðherra Pakistans lýsti því yfir að nágrannaríkin væru í „opnu stríði“ eftir mánaðalanga bardaga þar sem ríkin hafa skipst á skotum.

Fréttamenn AFP í Kabúl og Kandahar heyrðu sprengingar og þotur yfir höfði sér fram að dögun, þegar Pakistan hóf loftárásir á afgönsku höfuðborgina og suðlægt valdasetur talíbanastjórnarinnar þar.

Nálægt mikilvægu landamærastöðinni Torkham milli landanna tveggja heyrði fréttamaður AFP skothríð frá því um klukkan 9.30, sem er 5.00 að íslenskum tíma, á föstudag og búðir sem hýsa Afgana sem snúa aftur í stórum stíl frá Pakistan urðu fyrir árásum í bardögum næturinnar.

„Börn, konur og gamalt fólk hlupu um,“ sagði Gander Khan, 65 ára gamall endurkomumaður, við AFP fyrir framan raðir af tjöldum í Omari-búðunum.

Þessi nýja aðgerð Pakistans kom í kjölfar þess að afganskar hersveitir réðust á pakistanska landamæraverði á fimmtudagskvöld vegna fyrri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár