Hillary og Bill svara spurningum um Epstein fyrir luktum dyrum

Hjónin og áhrifa­fólki Hillary og Bill Clinton koma í dag og á morgun fyrir rann­sókn­ar­nefnd banda­ríska þings­ins vegna tengsla við kyn­ferð­is­brota­mann­inn Jeffrey Epstein.

Hillary og Bill svara spurningum um Epstein fyrir luktum dyrum
Framboð Hillary bauð sig fram til for­seta árið 2016 en laut í lægra haldi fyrir Donald Trump. Eig­in­maður hennar, Bill, var for­seti í tvö kjör­tíma­bil á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Mynd: stocklight / Shutterstock.com

Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, mun bera vitni fyrir luktum dyrum í dag fyrir þing­nefnd sem rann­sakar mál hins látna, dæmda kyn­ferð­is­brota­manns Jeffrey Epstein og vit­orðs­konu hans Ghislaine Maxwell.

Bill Clinton, fyrr­ver­andi for­seti, á að svara spurn­ingum á morgun frá full­trúum í eft­ir­lits­nefnd full­trúa­deild­ar­innar, sem er undir for­ystu Repúblik­ana, um tengsl sín við Epstein, sem lést í fanga­klefa í New York árið 2019 á meðan hann beið rétt­ar­halda.

Clinton-hjónin höfðu í fyrstu hafnað stefnum sem kváðu þau til vitn­is­burðar í rann­sókn nefnd­ar­innar, en hjónin, sem eru áhrifa­miklir demókratar, sam­þykktu að lokum að gera það eftir að repúblikanar í full­trúa­deild­inni hót­uðu að ákæra þau fyrir að sýna þing­inu van­virð­ingu.

Demókratar segja að rann­sóknin sé notuð sem vopn til að ráð­ast á póli­tíska and­stæð­inga Donalds Trump, for­seta Repúblik­ana – sem sjálfur var fyrrum sam­starfs­maður Epstein en hefur ekki verið kall­aður til vitn­is­burðar – frekar en að vera hluti af …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár