Eitrið sem drap Navalny líklega búið til á rannsóknarstofu

„Villtir froskar í haldi munu missa eit­ur­virkni sína eftir nokkra mán­uði af því að éta flugur,“ segir sér­fræð­ingur í eitr­uðum froskum. Navalny lést í fanganý­lendu á norð­ur­slóðum í febr­úar 2024 þar sem hann afplán­aði 19 ára dóm fyrir „öfga­stefnu“. Talið er að eitrað hafi verið fyrir honum með froska­eitri.

Eitrið sem drap Navalny líklega búið til á rannsóknarstofu

Sér­fræð­ingar í suð­ur­am­er­ískum eit­urörva­froskum segj­ast halda að eitrið sem talið er hafa orðið rúss­neska and­ófs­mann­inum Alexei Navalny að bana hafi lík­lega verið til­búin eft­ir­lík­ing fram­leidd á rann­sókn­ar­stofu frekar en að því hafi verið safnað beint úr nátt­úr­unni.

Stjórn­völd í nokkrum Evr­ópu­löndum héldu því fram á laug­ar­dag að Navalny – sem var mik­ill gagn­rýn­andi Vla­dimirs Pútíns Rúss­lands­for­seta – hafi verið drep­inn með tauga­eitr­inu epi­batid­íni, sem finnst í „eit­urörva­froskum í Suður-Ameríku“.

Talið er að nokkrar suð­ur­am­er­ískar eit­urörva­froska­teg­undir beri eitrið, en lík­leg­asti söku­dólg­ur­inn finnst í frum­skógum Ekvador og Perú.

Auðvelt er að nálg­ast frosk­ana sjálfa, bæði lög­lega með leyfum og ólög­lega fyrir nokkra doll­ara.

„Það er ekki erfitt að finna þá á hvaða mark­aði sem er,“ sagði Andrea Teran, frá Jambatu-mið­stöð­inni fyrir frosk­dýra­rann­sóknir og verndun í Ekvador.

Á síð­ustu tíu árum hafa meira en 800 ein­tök af þeirri teg­und sem grunur leikur á – Epipedobates ant­honyi, …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár