Athugun siðanefndar ekki aðför að fræðimannsheiðri

Í úrskurði siða­nefndar Háskól­ans á Bifröst í málum þriggja fræði­manna segir að spurn­ingar um hvort fólk sé að ósekju að eigna sér vinnu ann­arra séu „gríð­ar­lega algengar í rann­sóknaum­hverfi sam­tím­ans“. Siða­nefnd mat það sem svo að notkun gervi­greindar meðal stjórn­enda væri ekki áhyggju­efni.

Athugun siðanefndar ekki aðför að fræðimannsheiðri

„Það er hlut­verk siða­nefndar að fá fram gögn um máls­at­vik og úrskurða um hvort til­tekin hátt­semi gangi á svig við siða­reglur. Athugun siða­nefndar getur ekki ein og sér talist aðför að fræði­manns­heiðri,“ segir í úrskurðum siða­nefndar Háskól­ans á Bifröst í máli Hönnu Krist­ínar Skafta­dóttur ann­ars vegar og Ragnars Más Vil­hjálms­sonar og Haraldar Daða Ragn­ars­sonar hins vegar.

Eins og fjallað hefur verið um var úrskurðað svo að umræddir fræði­menn hefðu ekki gerst brot­legir við siða­reglur skól­ans. Kæran og deilur í kringum hana innan Háskól­ans á Bifröst hafa verið í hámælum und­an­farna daga. 

Sagði kæruna tilraun til faglegrar aftöku

„Þetta mál er grafal­var­leg aðför að heiðri mínum sem fræði­manns og mál sem í raun má líkja við til­raun til fag­legrar aftöku,“ skrif­aði Hanna Kristín á Facebook-síðu sína um málið í jan­úar. 

„Spurn­ingar um hvort meintir höf­undar séu að ósekju að eigna sér vinnu ann­arra eða hvort vits­muna­legt fram­lag …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár