„Hefði ekki verið nær að hafa einhvern með vit á málefninu?“

Kjart­an Magnús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, seg­ir lofts­lag­ið „flók­ið fyr­ir­brigði“ og gagn­rýni á ríkj­andi vís­indi jafn­vel ekki leyfi­lega eft­ir fund hjá Sam­bandi eldri sjálf­stæð­is­manna með Frosta Sig­ur­jóns­syni, höf­undi bók­ar­inn­ar Hita­mála. Andri Snær Magna­son seg­ir flokk­inn af­vega­leiða fólk.

„Hefði ekki verið nær að hafa einhvern með vit á málefninu?“
Deilt um loftslagsmál Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamála, var milli tannanna á Andra Snæ Magnasyni rithöfundi og Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa.

Frosti Sigurjónsson hagfræðingur kynnti bók sína Hitamál á fundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna í gær. Í bókinni er lögð áhersla á að vísindamenn séu ekki sammála um hversu stór hluti hlýnunar jarðar skýrist af losun mannfólks á gróðurhúsalofttegundum.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vakti athygli á fundinum í færslu á Facebook í gærkvöldi. „Loftslagið er flókið fyrirbrigði þar sem margir þættir hafa áhrif, t.d. skýjafar, hafstraumar, mengun og sólvirkni,“ skrifaði hann. „Loftslagsmál eru orðin að stóru pólitísku máli, þar sem ýmsum fullyrðingum er haldið á lofti og gagnrýni virðist jafnvel ekki vera leyfileg.“

Andri Snær Magnason rithöfundur svaraði færslu Kjartans. „Hafið þið haft slíkan fund þar sem vísindamenn tala við eldri sjálfstæðismenn og hefði ekki verið nær að hafa einhvern með vit á málefninu til að leiðrétta hugmyndir um „skýjafar og allskonar“?“ skrifar Andri Snær, en Frosti hefur verið gagnrýndur fyrir að skrifa bók um loftslagsmál þrátt fyrir að hafa ekki sérþekkingu …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er bráðnauðsynlegt að vekja athygli á mönnum eins og Frosta sem halda fram tómri vitleysu um grafalvarleg mál.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hver er keyptur og hver er ekki keyprur ? Sannleikurinn er ekki alltaf sannur sagði ein mannvitsbrekkan. Hver á hagsmuna að gæta ?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár