„Þú ert útjaskaður lúser lögfræðingur“

Pam Bondi, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hreytti upp­nefnum í þing­menn þegar hún svar­aði fyrir Epstein-skjölin.

„Þú ert útjaskaður lúser lögfræðingur“
Pam Bondi Dóms­mála­ráð­herr­ann sýndi þing­mönnum litla virð­ingu.

Demókratar á Banda­ríkja­þingi sök­uðu Pam Bondi, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í gær um að stunda „yfir­hylm­ingu“ með Epstein-skjölin og breyta dóms­mála­ráðu­neyt­inu í „tæki hefndar“ fyrir Donald Trump for­seta.

Bondi, sem bar vitni fyrir dóms­mála­nefnd full­trúa­deild­ar­innar, varði með­ferð ráðu­neyt­is­ins á birt­ingu Epstein-skjal­anna og sagði að „rann­sóknir væru í gangi“ í mál­inu, en áður hefur Alrík­is­lög­reglan (FBI) gefið út að ekki séu nægar sann­anir til að byggja frek­ari sak­sókn á.

Hún útskýrði rann­sókn­irnar ekki nánar í hörðum yfir­heyrslum sem nokkur fórn­ar­lömb Epsteins sátu, en hann lést í fanga­klefa í New York árið 2019 á meðan hann beið rétt­ar­halda fyrir man­sal með stúlkur undir lög­aldri.

Aðstoð­ar­maður Bondi, Todd Blanche, sagði nýlega að ekki væri búist við frek­ari sak­sóknum í tengslum við Epstein, þennan auð­uga fjár­mála­mann sem hafði víð­tæk tengsl við hátt­setta stjórn­endur í við­skipta­líf­inu, stjórn­mála­menn, frægt fólk og fræði­menn.

Yfirstrikanir séu yfirhylming

Jamie Raskin, helsti full­trúi demókrata í nefnd­inni, gagn­rýndi hversu hægt gengi að birta Epstein-skjölin og þær yfir­strik­anir sem gerðar hefðu verið á skjöl­unum.

„Þið stundið gríð­ar­lega yfir­hylm­ingu með Epstein-skjölin beint út úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu,“ sagði Raskin. „Ykkur hefur verið skipað með stefnu og af þing­inu að afhenda sex millj­ónir skjala, ljós­mynda og mynd­banda úr Epstein-skjöl­unum, en þið hafið aðeins afhent þrjár millj­ónir.“

Lögin um gagn­sæi Epstein-skjal­anna, sem þingið sam­þykkti í nóv­em­ber, neyddu dóms­mála­ráðu­neytið til að birta öll skjöl í sinni vörslu sem tengj­ast Epstein innan 30 daga.

Lögin kröfð­ust þess að nöfn eða aðrar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um þolendur Epsteins yrðu yfir­strik­aðar, en þær voru yfir 1.000 tals­ins sam­kvæmt FBI.

Valda­mikla fólkið sem var í vin­gjarn­legu sam­bandi við Epstein mátti ekki verja „á grund­velli vand­ræða­gangs, mann­orðs­skaða eða póli­tísks við­kvæmni,“ segir í lög­unum.

Raskin sagði að nöfn „mis­not­enda, stuðn­ings­manna, vit­orðs­manna og sam­verka­manna“ Epsteins hefðu engu að síður verið yfir­strikuð, „sýni­lega til að hlífa þeim við vand­ræða­gangi og skömm.“

„Það sem verra er, þá mis­fórst ykkur á átak­an­legan hátt að yfir­strika nöfn margra fórn­ar­lambanna,“ bætti hann við.

Bondi, náinn banda­maður Trumps, sagði að hund­ruð lög­fræð­inga hefðu varið þús­undum klukku­stunda í að fara nákvæm­lega yfir millj­ónir blað­síðna til að fara að lögum.

„Ef nafn ein­hvers manns var yfir­strikað sem ekki hefði átt að vera, munum við að sjálf­sögðu afmá yfir­strik­un­ina,“ sagði dóms­mála­ráð­herr­ann. „Ef nafn fórn­ar­lambs var ekki yfir­strikað, vin­sam­leg­ast komið með það til okkar og við munum yfir­strika það.“

„Við fengum 30 daga til að fara yfir og yfir­strika og afmá yfir­strik­anir á millj­ónum blað­síðna af skjölum,“ sagði hún. „Villu­hlut­fall okkar er mjög lágt.“

„Hefndartæki Trumps“

Bondi neit­aði ítrekað að svara beint spurn­ingum frá þing­mönnum demókrata í spennu­þrungnum yfir­heyrslum og krydd­aði svör sín með per­són­u­árásum.

Hún neit­aði beiðni frá þing­manni demókrata um að snúa sér við og biðja fórn­ar­lömb Epsteins í salnum beint afsök­unar en sagð­ist þó harma þján­ingar þeirra.

Raskin og aðrir þing­menn demókrata for­dæmdu sak­sóknir dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins gegn póli­tískum and­stæð­ingum Trumps eins og James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóra FBI, og Letitiu James, dóms­mála­ráð­herra New York.

„Þið hafið breytt dóms­mála­ráðu­neyti fólks­ins í hefnd­ar­tæki Trumps,“ sagði hann. „Trump pantar sak­sóknir eins og pít­sur og þið afhendið í hvert skipti sem hann segir ykkur það.“

„Þú ert útjaskaður lúser lögfræðingur“

Bondi átti einnig í hörðum orða­skiptum við Jamie Raskin frá Maryland, helsta demókrata nefnd­ar­innar, þegar hann reyndi að koma í veg fyrir að dóms­mála­ráð­herr­ann not­aði löng og flækju­leg svör til að eyða þeim fimm mín­útum sem nefnd­ar­menn fá til að spyrja spurn­inga. Þegar Raskin sagði að hann hefði varað Bondi við því í upp­hafi yfir­heyrsl­unnar að eyða tím­anum, svar­aði Bondi með því að öskra: „Þú segir mér ekki neitt.

„Þú ert útjask­aður lúsera­lög­fræð­ingur. Þú ert ekki einu sinni lög­fræð­ingur,“ sagði hún við Raskin, sem er lög­maður og pró­fessor í lögum með sér­hæf­ingu í stjórn­ar­skránni.

Hún lét einnig Zoe Lofgren, demókrata frá Kali­forníu, heyra það þegar hún sagði dóms­mála­ráðu­neytið hafa misst trú­verð­ug­leika vegna víð­tækra yfir­strik­ana. 

„Hún heldur áfram að ráð­ast á Trump for­seta, besta for­seta í sögu Banda­ríkj­anna“
Pam Bondi
Dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna í umræðu um Epstein-skjölin

„Mér finnst athygl­is­vert að hún heldur áfram að ráð­ast á Trump for­seta, besta for­seta í sögu Banda­ríkj­anna,“ sagði Bondi.

Dóms­mála­ráð­herra og dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hafa yfir­leitt haldið sig í hæfi­legri fjar­lægð frá for­set­anum og Hvíta hús­inu til að forð­ast ásak­anir um póli­tísk afskipti af lög­gæslu, en Trump hefur rofið þá venju.

Bondi átti einnig í hörðum orða­skiptum við Ted Lieu, þing­mann demókrata frá Kali­forníu, sem spurði hvort Trump hefði nokkurn tíma sótt partí með stúlkum undir lög­aldri. „Þetta er svo fárán­legt,“ sagði Bondi. „Og þau eru að reyna að beina athygl­inni frá öllu því frá­bæra sem Donald Trump hefur gert. Það eru engar sann­anir fyrir því að Donald Trump hafi framið glæp. Allir vita það.“

Í skjöl­unum eru marg­vís­legar ásak­anir á hendur Donald Trump, en þær eru ósann­aðar, ein­hliða ásak­anir. Nánasta sam­band Trumps við Jeffrey Epstein átti sér hins vegar stað fyrir þann tíma sem gögnin ná til og fyrir víð­tæka notkun tölvu­pósts, sem Trump er sagður nota lítið sem ekk­ert enn þann dag í dag.

Maxwell ein í fangelsi

Ghislaine Maxwell, fyrr­ver­andi kærasta Epsteins, er eina mann­eskjan á bak við lás og slá í tengslum við Epstein. Hún var dæmd árið 2021 fyrir man­sal með stúlkur undir lög­aldri og afplánar nú 20 ára fang­els­is­dóm.

Trump hefur ekki verið sak­aður um neitt mis­jafnt varð­andi Epstein en hann barð­ist í marga mán­uði til að koma í veg fyrir birt­ingu skjal­anna um fyrr­ver­andi vin sinn, þrátt fyrir að margir sam­herjar hans hafi kraf­ist birt­ing­ar­innar þegar demókratar voru með for­seta­stól­inn.

Uppreisn meðal repúblik­ana neyddi for­set­ann að lokum til að sam­þykkja lögin sem kveða á um birt­ingu allra skjal­anna.

Þessi aðgerð end­ur­spegl­aði mik­inn póli­tískan þrýst­ing til að bregð­ast við því sem margir Banda­ríkja­menn, þar á meðal stuðn­ings­menn Trumps sjálfs, hafa lengi grunað að væri yfir­hylm­ing til að vernda ríka og valda­mikla menn í innsta hring Epsteins.

End­ur­teknar neit­anir Trumps um að hafa vitað af glæpum Epsteins hafa verið teknar til skoð­unar vegna FBI-við­tals frá 2019 – sem er að finna í Epstein-skjöl­unum – við Michael Reiter, þáver­andi lög­reglu­stjóra í Palm Beach.

Reiter sagði FBI að Trump hefði hringt í hann árið 2006 – þegar kyn­ferð­is­brota­málin gegn Epstein komust í hámæli – til að segja: „Guði sé lof að þú ert að stöðva hann, allir hafa vitað að hann hefur verið að gera þetta.“

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Ég horfði á stóran hluta yfirheyrslnanna á Bondi. Hún hagaði sér eins og 12 ára gelgja sem er að farast úr frekju, dóna- og kjánaskap. Að þessi kona skuli vera dómsmálaráðherra Bandaríkjanna er fullkomlega galið og óskiljanlegt.

    Bandaríkin eru heimsveldi sem er statt í miðju sjálfstortímingarferli. Hvern hefði órað fyrir öllu þessu brjálæði bara fyrir nokkrum árum síðan?
    14
    • HH
      Hjörtur Herbertsson skrifaði
      Það er líka jafngalið að Trump skuli vera forseti Bandarikjana
      14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár