Meloni og Merz: Nýtt ofurpar Evrópusambandsins

Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, og Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, virð­ast komin lang­leið­ina með að mynda nýja kjöl­festu í Evr­ópu­sam­band­inu. Póli­tískur óstöð­ug­leiki í Frakk­landi og and­staðan gegn Mercosur-samn­ingnum hefur ýtt Emmanuel Macron út í horn.

Meloni og Merz: Nýtt ofurpar Evrópusambandsins
Vinir Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, og Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, virð­ast vera orðnir nán­ari sam­starfs­fé­lagar en Merz og Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands. Hér eru þau öll þrjú á þing­fundi leið­toga­fundar G20-ríkj­anna í Nasrec Expo Centre í Jóhann­es­ar­borg í nóv­em­ber 2025. Mynd: Leon Neal / AFP

Í málum allt frá við­skipta­samn­ingum til bíla­iðn­að­ar­ins hafa Giorgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, og Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, í auknum mæli sam­einað krafta sína til að stýra stefnu­málum Evr­ópu­sam­bands­ins – og hafa um leið tekið þá áhættu að ýta Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta til hliðar.

Á leið­toga­fundi ESB í dag munu Meloni, sem er lengst til hægri, og Merz, sem er íhalds­samur, leggja áherslu á sam­eig­in­lega sýn á að efla sam­keppn­is­hæfni ESB. Þetta er nýjasta merkið um vax­andi sam­starf ítal­skra og þýskra stjórn­valda, sem setur spurn­inga­merki við stöðu hins hefð­bundna banda­lags Frakk­lands og Þýska­lands.

„Sumir álits­gjafar segja að 2026 verði ár Ítalíu og Þýska­lands,“ sagði Meloni í síð­asta mán­uði á leið­toga­fundi með Merz í Róm. „Við ætlum að leggja allt í söl­urnar ... til að treysta vin­áttu sem er stefnu­mark­andi ekki aðeins fyrir þjóðir okkar, heldur fyrir Evrópu í heild.“

Leið­tog­arnir tveir hafa lengi deilt harðri afstöðu til fólks­flutn­inga, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár