Ari Edwald, sem býður sig fram til borgarstjórnar Reykjavíkur sem fyrsti maður á lista Miðflokksins, flutti lögheimili sitt til borgarinnar í gær frá Portúgal. Þarlendis naut hann skattfríðinda sem „non-habitual resident“ (NHR) samkvæmt portúgalskri skattalöggjöf.
Ari staðfestir þetta í samtali við Heimildina. „Fólki er náttúrulega frjálst að flytja eins og það vill innan Evrópska efnahagssvæðisins og þarf ekki að gefa neinar skýringar á því,“ segir Ari. „Það er einkamál, mínar aðstæður og af hverju ég kýs að búa hér eða þar.“
Portúgölsk stjórnvöld þrengdu árið 2024 skilyrði fyrir NHR skráningu en hún er nú ætluð til að laða að sérfræðinga úr ákveðnum geirum, til að mynda viðskiptalífinu. Þeir sem sækja um NHR geta fengið skráningu til 10 ára og greiða þá einungis flatan 20% skatt af portúgölskum tekjum en ýmsar erlendar tekjur geta þar einnig verið undir ef tvísköttunarsamningur er til staðar. Portúgal og Ísland hafa einmitt gert með sér …










































Athugasemdir (1)