Bandaríkin vilja þríhliða kjarnorkusamning við Rússland og Kína

Banda­rísk stjórn­völd vilja ná saman við Rússa og Kínverja um nýjan kjarn­orku­vopna­samn­ing í stað þess sem rann út á fimmtu­dag. Kínversk stjórn­völd hafa ekki áhuga á því á þessu stigi. Enginn samn­ingur er nú í gildi sem tak­markar fjölda kjarn­orku­vopna.

Bandaríkin vilja þríhliða kjarnorkusamning við Rússland og Kína
Ábyrgð Rússar hétu því á mið­viku­dag að bregð­ast við af „ábyrgð“ ef síð­asti kjarn­orku­sátt­máli þeirra við Banda­ríkin rynni út, sem hann gerði á mið­nætti á fimmtu­dag. Mynd: YURI KADOBNOV / AFP

Banda­ríkin vilja þrí­hliða við­ræður við Rússland og Kína um að setja ný tak­mörk fyrir kjarn­orku­vopnum, eftir að síð­asti samn­ingur milli stærstu kjarn­orku­veld­anna, Banda­ríkj­anna og Rúss­lands, rann út.

Kínversk stjórn­völd hafa þegar hafnað því að taka þátt í afvopn­un­ar­við­ræðum „á þessu stigi“, á meðan Rússland lagði til að önnur kjarn­orku­vopnuð ríki eins og Bretland og Frakk­land yrðu tekin með.

„Vopna­eft­ir­lit getur ekki lengur verið tví­hliða mál milli Banda­ríkj­anna og Rúss­lands,“ skrif­aði Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í grein sem birt­ist í dag. „Önnur lönd bera ábyrgð á því að tryggja hern­að­ar­legan stöð­ug­leika, engin fremur en Kína.“

Thomas DiNanno, aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna í vopna­eft­ir­lits­málum, kynnti nýja áætlun á afvopn­un­ar­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna og full­yrti að Nýi START-samn­ing­ur­inn, sem rann út á fimmtu­dag, hefði haft „grund­vall­argalla“.

„Ítrekuð brot Rússa, efl­ing vopna­búra um allan heim og gallar í hönnun og fram­kvæmd Nýja START-samn­ings­ins gefa Banda­ríkj­unum skýra ástæðu til að kalla eftir …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár