Sjómaður þarf að flýja Ísland árið 2087 vegna frosts og aflabrests

Hóp­ur vís­inda­manna hvet­ur til að­gerða til að stöðva nið­ur­brot AMOC haf­straums­ins í skýrslu Nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­inn­ar. Með henni fylg­ir skáld­uð smá­saga sem ger­ist eft­ir sex ára­tugi og fjall­ar um Ragn­ar Hjör­leifs­son, sjó­mann á fimm­tugs­aldri, sem get­ur ekki leng­ur unn­ið vegna gjör­breytts lofts­lags á Ís­landi.

Sjómaður þarf að flýja Ísland árið 2087 vegna frosts og aflabrests
Hafís Ísland verður óbyggilegt ef AMOC hafstraumurinn brotnar niður samkvæmt skáldlegum lýsingum í skýrslu vísindamannanna. Mynd: AFP

Norræna ráðherranefndin hefur birt skýrslu um hætturnar sem fylgja því fyrir Norðurlönd ef AMOC hafstraumurinn brotnar niður.

Með skýrslunni fylgir smásaga sem ber titilinn „Vor á Íslandi 2087“ og er ætlað að vekja lesandann til umhugsunar um hvernig Ísland gæti litið út eftir rúma sex áratugi. Bent er þó á að áhrif niðurbrots AMOC séu líklegri til að koma fram eftir árið 2150.

Skýrslan var unnin að frumkvæði Finnlands sem fer með forsæti í Norðurlandaráði um þessar mundir og byggir á ráðstefnu vísindamanna sem haldin var um málefnið í Helsinki í Október. Tilgangur skýrslunnar er að vekja athygli ráðamanna á áhrifum þess ef hafstraumurinn brotnar niður og hvað sé hægt að gera til að mæta þeirri hættu.

Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) stuðlar að flutningi hlýs yfirborðssjávar norður á bóginn og djúpstreymi saltríkari og kaldari sjávar suður. Þökk sé …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það er stórfurðulegt hversu hápólitísk málefnin, tengd loftslagskrísunni og öðrum manngerðum krísum, eru orðin. Það er meirihluti kjósenda Miðflokksins, og stór hluti annars hægrifólks, sem hlær bara þegar minnst er á þessi alvarlegu málefni. Hvernig í fjandanum má það eiginlega vera? Mér er um megn að skilja það.
    8
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Það verður því miður alls engin lausn að þjappa öllum landsmönnum sama í jarðhitann á suðvesturhorninu eins og þarna er lýst. Jarðhitinn dugar engan veginn. Þetta yrðu þvert á móti, því miður, endalok byggðar á Íslandi. Þessu var öllu klúðrað fyrir nokkrum árum þegar Íslendingar sóttu um og fengu illa ígrundaða undanþágu frá Evrópukröfum um einangrun húsa því heitavatnið væri svo ódýrt. Við sitjum í súpunni og heitvatnsnotkun er orðin gríðarleg, tvöfalt meiri varma þarf til að hita hús á Íslandi en í Skandinavíu, vatnsskorts er þegar farið að gæta í sumum hitaveitum enda tvöfaldast heitvatnsnotkunin að jafnaði á 40 ára fresti, sjálfbærni sumra hitaveitna því stefnt í tvísýnu, og húsin þola bara skammvinn kuldaköst og alls ekki áföll í hitaveiturekstri af neinu tagi eins og augljóst var í eldsumbrotunum á Reykjanesi fyrir fáum árum. Þessi lélega einangrun leiðir líka af sér lélegri loftun húsa, óheilsusamlegra inniloft, lélegri hljóðvist o.fl. Illa höfum við Íslendingar hér farið að ráði okkar í nýtingu jarðvarmans.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár