Bandarísku samtökin Students for Liberty, sem fjármögnuð eru í gegnum net félaga sem bandaríski milljarðamæringurinn Charles Koch hefur styrkt, boða hugmyndafræði frjálshyggju á Íslandi. Hugveita sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, er aðili að sama neti félaga. Áhrifafólk í Miðflokknum verður sífellt meira áberandi í starfi Students for Liberty, sem hingað til hefur helst verið tengt fólki úr Sjálfstæðisflokknum.
Alþjóðafulltrúi Miðflokksins, Breki Atlason, leiðir Students for Liberty á Íslandi, og sækist nú eftir sæti á lista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar. Hann hefur staðið fyrir ráðstefnum með áhrifafólki af hægri væng stjórnmálanna, bæði innlendu og erlendis frá, sem ætla má að fái fjárstuðning frá alþjóðaskrifstofu Students for Liberty miðað við opinbera stefnu samtakanna um að styðja þá viðburði sem tugir þúsunda fulltrúa þeirra um heim allan standa fyrir.
Breki svaraði ekki spurningum Heimildarinnar um málið þegar eftir því var leitað.
Milljarðamæringurinn Charles Koch, sem ásamt bróður sínum, David, stofnaði olíurisann Koch Industries, …













































Athugasemdir (1)