Rúmlega 800 manns hafa skrifað undir lista á Ísland.is þar sem mótmælt er uppbyggingu 160 herbergja hótels á þremur til fjórum hæðum við Laugarvatn. Félagið Bergey stendur að baki verkefninu en það er í eigu fjölskyldu útgerðarmanns sem rak Berg-Huginn í Vestmannaeyjum um áratuga skeið.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur boðað til íbúafundar á þriðjudagskvöld vegna málsins. „Byggingarnar munu skerða útsýni og aðgengi að vatninu og aukin bílaumferð mun skapa hættu þar sem á svæðinu er mikil umferð barna og fullorðinna í kringum íþróttamannvirki,“ segir í skýringu við undirskriftalistann. „Í dag myndar svæðið heild með vatninu og votlendinu sem að því liggur og er mikilvægt fyrir lífríki á Laugarvatni, einkum fugla.“
Að verkefninu stendur félagið Lognfossar ehf., en Bergey fasteignafélag á félagið að fullu samkvæmt nýjast ársreikningi. Bergey hefur verið í örum vexti undanfarin ár og á félagið fjölda eigna í miðborg Reykjavíkur og víðar. Eignir félagsins hýsa flaggskipsverslun 66° Norður við …













































Athugasemdir