Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða

Lands­bank­inn stefnir að því að greiða eig­anda sínum, íslenska rík­inu, 19 millj­arða króna í arð vegna vel­gengni síð­asta árs. Hagn­að­ur­inn hækkar lít­il­lega á milli ára.

Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða

Hagnaður Lands­bank­ans á síð­asta ári nam 38 millj­örðum króna, sam­an­borið við 37,5 millj­arða króna árið áður, sam­kvæmt árs­upp­gjöri bank­ans sem birt var í dag. 

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að arð­semi eigin fjár fyrir árið hafi verið 11,6 pró­sent, sem er í takt við fyrri ár. Bankaráð Lands­bank­ans hyggst leggja til við aðal­fund að greiða um 19 millj­arða króna í arð til hlut­hafa, sem nemur um helm­ingi af hagn­að­inum. 

Þá er banka­ráðið með til skoð­unar að leggja til sér­staka arð­greiðslu fyrir aðal­fund­inn.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að hreinar vaxta­tekjur á árinu hafi numið 62,1 millj­arði króna og hreinar þjón­ustu­tekjur 12,6 millj­arðar króna. Útlán juk­ust um nær 77 millj­arða króna frá ára­mótum. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 24,8 pró­sent í lok árs, sem er tals­vert yfir lág­marks­kröfum fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ing­unni að árangur árs­ins end­ur­spegla traustan rekstur og að bank­inn stefni að því að tryggja verð­mæta­sköpun fyrir við­skipta­vini og hlut­hafa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár