Ungur maður frá Taívan var nýbúinn að ljúka skiptinámi í Bandaríkjunum þegar hann ákvað að nýta heimferðina til ferðalaga. Hann er menntaður í veðurfræði og loftslagsvísindum og áhugi hans á norðurslóðum leiddi hann alla leið til Grænlands. Þar fann hann ekki aðeins stórbrotna náttúru heldur einnig pólitískar og samfélagslegar hliðstæður við stöðu Taívan.
„Þótt hernaðarlega sé staðsetning Grænlands afar mikilvæg – bæði fyrir Evrópu og Bandaríkin í ljósi Rússlands og Kína – þá verður samt að virða vilja grænlensku þjóðarinnar,“ segir hann.
Hugmyndin kviknaði eftir að hann sá myndbönd frá Grænlandi á YouTube. „Landslagið er svo fallegt að ég varð að koma. Þar sem ég var staddur í Bandaríkjunum var einfaldara að fara fyrst til Íslands og þaðan áfram til Grænlands en að ferðast beint frá Taívan.“
Nánast á grasi í hundasleðaferð
Ferðin til Grænlands gekk þó ekki snurðulaust. Flugi var aflýst vegna óveðurs og dvölinni seinkaði um tvo daga. …






















































Athugasemdir (1)