Hjaðnandi verðbólga í stríðshagkerfi Rússa

Stýri­vextir í 20% og hag­vöxtur í núlli.

Hjaðnandi verðbólga í stríðshagkerfi Rússa
Vladimir Pútín Vonin í vest­rænum löndum hefur snúið að því að hag­kerfi Rúss­lands þoli ekki til lengdar inn­rás­ar­stríðið í Úkraínu. Mynd: Spútnik

Árs­verð­bólga í Rúss­landi dróst veru­lega saman árið 2025, sam­kvæmt gögnum frá hag­stofu rík­is­ins sem birt voru í dag, en það virð­ist sem aðgerðir seðla­bank­ans til að hemja verð­hækk­anir hafi borið árangur.

Seðla­banki Rúss­lands hélt stýri­vöxtum nálægt 20 pró­sentum í næstum tvö ár þar sem mikil hern­að­ar­út­gjöld, sem í upp­hafi gáfu rúss­neska hag­kerf­inu byr undir báða vængi, ýttu einnig undir gríð­ar­lega verð­bólgu.

Verð­hækk­anir hægðu á sér og námu um sex pró­sentum á síð­asta ári, að sögn Rosstat-hag­stof­unnar.

Þetta er mik­ill sam­dráttur frá þeim 10 pró­sentum sem mæld­ust árið 2024 og var einnig undir því sem seðla­bank­inn og sér­fræð­ingar höfðu spáð.

Árið 2025 hóf bank­inn að lækka stýri­vexti smám saman eftir því sem verð­hækk­anir dróg­ust saman og fyr­ir­tæki kvört­uðu undan háum lán­töku­kostn­aði sem hefur íþyngt hag­vexti.

Í síð­asta mán­uði sagði Rosstat að hag­vöxtur hefði verið nálægt núlli á þriðja árs­fjórð­ungi.

Í nóv­em­ber lækk­aði verð­bólgan niður í um sex pró­sent úr sjö pró­sentum mán­uð­inn á undan, sem er mesta 12 mán­aða lækkun árs­ins 2025, að sögn Rosstat.

Bankinn stefnir að fjög­urra pró­senta verð­bólgu fyrir árið 2027.

Verð­bólga á Íslandi hefur hins vegar farið vax­andi síð­ustu mán­uði. Hún var 4,5% í síð­asta mán­uði og gera mark­aðs­að­ilar við að hún hækki tölu­vert, eða í 5,1%.

Stjórn­völd í Kreml hafa hækkað skatta til að sækja í vasa borg­ara og fyr­ir­tækja til að brúa fjár­laga­gat síð­asta árs sem nam um 50 millj­örðum dala, eða sem nemur 6,3 billjónum króna.

Á fjórum árum stríðs­ins í Úkraínu hafa hern­að­ar­út­gjöld Rúss­lands rokið upp úr öllu valdi, á meðan olíu- og gas­tekjur þeirra hafa dreg­ist saman vegna við­skipta­þving­ana.

Árið 2025 juk­ust hern­að­ar­út­gjöld Rúss­lands um þrjú pró­sent frá árinu 2024, sem sam­svarar um sjö pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu (VLF), sam­kvæmt mati Alþjóð­legu frið­ar­rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar í Stokk­hólmi (SIPRI).

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár