Erla Björg hættir sem ritstjóri: „Stundum hef ég þurft að minna mig á æðruleysið“

Erla Björg Gunn­ars­dóttir er hætt sem rit­stjóri á frétta­stofu Sýnar. Í færslu á sam­fé­lags­miðlum segir hún að í áranna rás hafi hún unnið eins og hún gat með síbreyti­legan far­veg þar sem hún hafi stundum þurft að minna sig á æðru­leysið og hverju hún gæti stjórnað. „Eftir marga slíka hringi kemur að þeim tíma­punkti að það er best að kveðja og hleypa nýjum kröftum í bar­átt­una.“

Erla Björg hættir sem ritstjóri: „Stundum hef ég þurft að minna mig á æðruleysið“

Erla Björg Gunn­ars­dóttir hefur sagt upp starfi sínu sem rit­stjóri frétta­stofu Sýnar eftir þrettán ára starf á miðl­inum. Núver­andi stöðu sinni hafði hún gengt í fjögur og hálft ár „sem mér skilst að sé tíma­met á þess­ari frétta­stofu,“ skrifar hún í færslu á Facebook.

Þar þakkar hún sér­stak­lega sam­starfs­fólki sínu á frétta­stof­unni sem hún segir hafa gefið sér kraft til að takast á við alls konar áskor­anir. „Ekki síst í rekstri og bar­áttu fyrir góðri blaða­mennsku.“

Eftir marga „hringi“ kemur að tímapunkti þar sem sé best að kveðja

Erla Björg nefnir að frá því hún hafi tekið við starfi rit­stjóra hafi fjórir for­stjórar starfað og svipt­ingar hafi verið aftur og aftur í stefnu og sjón­ar­miðum.

„Af ástríðu fyrir þess­ari frétta­stofu hef ég unnið eins og ég get með síbreyti­legan far­veg, reynt af öllum mætti að beina straumnum í rétta átt og láta þetta flæða áfram af fullum krafti.“

Oft segir hún það hafa gengið vel. „En stundum hef ég þurft að minna mig á æðru­leysið og hvað er í minni stjórn og hvað ekki. Eftir marga slíka hringi kemur að þeim tíma­punkti að það er best að kveðja og hleypa nýjum kröftum í bar­átt­una. Eftir vand­lega íhugun í nokkurn tíma finn ég að sá tíma­punktur er núna.“ 

Kolbeinn Tumi Daðason frétta­stjóri tekur við stjórn frétta­stof­unnar frá og með deg­inum í dag. Í frétt Vísis um málið segir að Erla Björg hafi greint frá ákvörðun sinni að segja upp starfi sínu í morgun. 

Færri fréttatímar og breytt vörumerki

Reglu­lega hafa borist fréttir af breyt­ingum innan Sýnar, sem lagði niður vöru­merkið Stöð 2 í fyrra. Í haust var til­kynnt um fækkun sjón­varps­frétta­tíma og í síð­asta mán­uði var frétta­flutn­ingi í sjón­varpi hætt um helgar og á almennum frí­dögum. Þá var fjórum starfs­mönnum frétta­stofu sagt upp sem og verk­taka­samn­ingum. 

„Þetta er gert í ljósi þess að rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla heilt yfir á Íslandi er að óbreyttu algjör­lega ósjálf­bært,“ sagði Herdís Dröfn Fjeld­sted við RÚV þegar þetta var til­kynnt. 

Gengi Sýnar hefur fallið um 42% á einu ári í kaup­höll­inni og hafa mark­aðs­að­ilar spáð því að hún muni falla mest af öllum skráðum félögum því ári sem nú er hafið. Engin við­skipti hafa verið með hluti félags­ins þegar þetta er skrifað.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár