Hvað mun ráða framtíð Írans?

Mótmæli hafa staðið yfir í Íran síð­ustu daga en klerka­stjórnin hefur reynt að berja þau niður af hörku. Að mati sér­fræð­inga er ekki hægt að segja til um hvort að fall íslamska lýð­veld­is­ins þar í landi sé yfir­vof­andi en þeir segja fimm þætti geta ráðið úrslitum um hver fram­tíð lands­ins verður.

Hvað mun ráða framtíð Írans?
Mótmæla klerka­stjórn­inni Mótmæli hafa farið fram víða en tak­markað aðgengi hefur verið að neti í Íran und­an­farna daga. Mynd: AFP

M

ótmæli hafa staðið yfir í meira en tvær vikur og eru þau ein alvar­leg­asta ógn við klerka­stjórn Írans í mörg ár, bæði hvað varðar umfang og eðli. Þó er of snemmt að spá fyrir um yfir­vof­andi fall íslamska lýð­veld­is­ins að sögn sér­fræð­inga.

Mótmælin þró­uð­ust úr því að vera af efna­hags­legum toga yfir í kröfur um alls­herj­ar­breyt­ingu á klerka­kerf­inu sem hefur verið við stjórn­völ­inn í Íran frá bylt­ing­unni 1979 þegar Íranskeis­ara var steypt af stóli.

Yfirvöld hafa beitt harð­ræði sem, að sögn mann­rétt­inda­sam­taka, hefur leitt til dauða hund­ruða manna á meðan stjórn æðsta leið­tog­ans Aya­tollah Ali Khamenei, sem nú er 86 ára, hefur enn valdið í höndum sér.

„Þessi mót­mæli eru að öllum lík­indum alvar­leg­asta ógnin við íslamska lýð­veldið í mörg ár, bæði hvað varðar umfang og sífellt skýr­ari póli­tískar kröfur,“ sagði Nicole Grajewski, pró­fessor við Sciences Po Centre for International Studies í París, í sam­tali við AFP.

Hún taldi óljóst hvort mót­mælin myndu steypa stjórn­inni af stóli og benti á „hversu djúpt og seigt kúg­un­ar­kerfi Írans er.“

Írönsk yfir­völd hafa boðað til eigin gagn­mót­mæla og mættu þús­undir á þau í gær.

Thomas Juneau, pró­fessor við Háskól­ann í Ottawa, sagði: „Á þessum tíma­punkti met ég það enn ekki svo að fall stjórn­ar­innar sé yfir­vof­andi. Aftur á móti er ég óviss­ari um það mat en áður.“

Að mati sér­fræð­inga munu eft­ir­far­andi þættir ráða því hvort leið­togar íslamska lýð­veld­is­ins haldi völdum:

1. Viðvarandi mótmæli

Lyk­il­þáttur er „ein­fald­lega stærð mót­mæl­anna; þau fara vax­andi en hafa ekki náð þeim fjölda sem myndi marka þátta­skil,“ sagði Juneau.

Mót­mæla­hreyf­ingin hófst með verk­föllum á basarnum í Teheran þann 28. des­em­ber sem þró­uð­ust út í fjölda­mót­mæli í höf­uð­borg­inni og öðrum borgum frá fimmtu­deg­inum síð­ast­liðnum.

Síðustu stóru mót­mælin í Íran voru árin 2022–2023. Þau urðu í kjöl­far dauða ungu kon­unnar Mahsa Amini sem hafði verið drepin í haldi lög­reglu fyrir að brjóta klæða­reglur kvenna. Þá fóru árið 2009 fram fjölda­mót­mæli eftir umdeildar kosn­ingar.

Yfirvöld hafa nú lokað fyrir net­að­gengi í nokkra daga sem gerir fólki erf­ið­ara fyrir að meta umfang yfir­stand­andi mót­mæla þar sem færri mynd­bönd hafa ratað á net­miðla.

Arash Azizi, fyr­ir­les­ari við Yale-háskóla, sagði að „mót­mæl­endur þurfi enn að kljást við að hafa ekki var­an­leg, skipu­lögð tengsla­net sem geta barist gegn kúg­un­inni.“

Hann sagði að einn mögu­leiki væri að „skipu­leggja verk­föll í mik­il­vægum atvinnu­greinum“ en það krefð­ist for­ystu sem enn væri ekki til staðar.

2. Samheldin elíta

Þótt ástandið á götum úti sé afar mik­il­vægt segja sér­fræð­ingar litlar líkur á breyt­ingum án þess að sprungur mynd­ist innan for­yst­unnar og lið­hlaup eigi sér stað innan örygg­is­sveita.

Hingað til hafa engin ummerki verið um slíkt þar sem allar stoðir íslamska lýð­veld­is­ins, frá þing­inu til for­set­ans og bylt­ing­ar­varða­liðs­ins (IRGC), hafa fylkt sér á bak við Khamenei.

„Eins og staðan er núna eru engin skýr merki um lið­hlaup í hernum eða klofn­ing meðal hátt­settra í elítu stjórn­ar­innar. Sögulega séð hefur þetta verið mik­il­væg vís­bend­ing um hvort mót­mæla­hreyf­ing geti leitt til falls stjórn­ar­innar,“ sagði Grajewski frá Sciences Po.

Jason Brodsky hjá banda­rísku sam­tök­unum United Against Nuclear Iran sagði mót­mælin „sögu­leg“ en bætti við að nokkur mis­mun­andi atriði þyrfti til að fella stjórn­ina. Þar á meðal „lið­hlaup í örygg­is­sveit­unum og sprungur í póli­tískri elítu íslamska lýð­veld­is­ins.“

3. Hernaðaríhlutun Ísraels eða Bandaríkjanna

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sem hefur hótað hern­að­ar­legum hefnd­ar­að­gerðum vegna harð­ræð­is­ins, til­kynnti á mánu­dag 25 pró­senta tolla gegn við­skipta­löndum Írans.

Hvíta húsið sagði að Trump for­gangs­rað­aði diplómat­ískum aðgerðum en hefði ekki úti­lokað árásir. Banda­ríkin tóku stutt­lega þátt í 12 daga stríði Ísraels gegn Íran í júní í fyrra.

Það stríð leiddi til dauða nokk­urra hátt­settra íranskra örygg­is­full­trúa, neyddi Khamenei til að fara í felur og afhjúpaði hversu djúpt leyni­þjón­usta Ísraels hafði seilst inn í íslamska lýð­veldið.

Banda­rískar árásir myndu gjör­breyta ástand­inu að sögn sér­fræð­inga.

Íranska utan­rík­is­ráðu­neytið sagði á mánu­dag að það hefði opnar sam­skipta­leiðir við Washington þrátt fyrir skort á stjórn­mála­sam­bandi.

„Bein hern­að­ar­í­hlutun Banda­ríkj­anna myndi gjör­breyta fram­vindu krepp­unnar,“ sagði Grajewski.

Juneau bætti við: „Stjórnin er við­kvæm­ari en hún hefur verið, bæði inn­an­lands og land­fræði­lega, síðan á verstu árum Íran-Írak stríðs­ins“ sem stóð frá 1980–1988.

4. Skipulögð andstaða

Reza Pahlavi, sonur keis­ar­ans sem steypt var af stóli og býr nú í Banda­ríkj­unum, hefur gegnt stóru hlut­verki í að hvetja til mót­mæla og slag­orð sem styðja kon­ungs­veldið hafa verið áber­andi.

En þar sem engin raun­veru­leg póli­tísk and­staða er eftir innan Írans er sam­fé­lag útlaga enn veru­lega klofið milli póli­tískra fylk­inga sem eru þekktar fyrir að berj­ast jafn mikið inn­byrðis og gegn íslamska lýð­veld­inu.

„Það þarf að vera for­ystu­banda­lag sem raun­veru­lega táknar breiðan hóp Írana en ekki bara eina póli­tíska fylk­ingu,“ sagði Azizi.

5. Heilsa Khameneis

Khamenei hefur nú verið við völd síðan 1989 þegar hann varð æðsti leið­togi, emb­ætti sem hann á að gegna til lífs­tíðar, eftir dauða Ruhollah Khomeini, stofn­anda bylt­ing­ar­innar.

Hann lifði af stríðið við Ísrael og kom fram opin­ber­lega á föstu­dag til að for­dæma mót­mælin með ögrandi hætti.

Óvissa hefur lengi ríkt um hver gæti tekið við af honum en meðal mögu­leika eru ann­ars vegar dul­ar­fullur en valda­mik­ill sonur hans, Mojtaba, eða hins vegar að valdið verði fært til nefndar frekar en ein­stak­lings.

Atburða­rás af þeim toga, milli óbreytts ástands og algerrar breyt­ingar, gæti leitt til „meira og minna form­legrar yfir­töku bylt­ing­ar­varð­anna,“ sagði Juneau.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár