Andstæðingar Maduro í felum eftir fall hans

Leið­togar stjórn­ar­and­stöð­unnar í Venes­ú­ela biðu lengi eftir falli Maduros. En nú þora þeir ekki að stíga fram. Á meðan ráð­stafa Banda­ríkin olíu­auð­lindum í land­inu.

Andstæðingar Maduro í felum eftir fall hans
Stuðn­ings­menn Maduros Stjórnar­and­staðan í Venes­ú­ela situr eftir í óvissu þrátt fyrir að ein­ræð­is­herr­anum Maduro hafi verið steypt af stóli. Mynd: AFP

Leið­togar hennar eru í útlegð, henni hefur verið ýtt til hliðar af Banda­ríkj­unum og stuðn­ings­menn hennar eru of hræddir til að fylla göt­urnar: Stjórn­ar­and­staðan í Venes­ú­ela situr eftir í óvissu þrátt fyrir að ein­ræð­is­herr­anum Nicolás Maduro hafi verið steypt af stóli. 

Stjórn­ar­and­staðan, sem almennt er talin hafa sigrað í for­seta­kosn­ing­unum 2024, sem Maduro var sak­aður um að hafa stolið, hafði lengi von­ast eftir slíkri aðgerð og þeirri sem leiddi til þess að Maduro var hand­samaður af banda­rískum her­mönnum og fluttur til New York þar sem hann á að sæta rétt­ar­höldum vegna meintra fíkni­efna­brota.

En í stað þess að taka við völdum var stjórn­ar­and­staðan snið­gengin af hálfu Donalds Trump, á meðan „chavista“-hreyf­ing Maduros hélt völdum sínum og náinn banda­maður hans varð starf­andi for­seti.

Sér­fræð­ingar og heim­ild­ar­menn segja að stjórn­ar­and­staða Venes­ú­ela, undir for­ystu Maríu Corinu Machado, skorti skipu­lagt stjórn­kerfi og þá sér­þekk­ingu sem þarf til að stjórna – og umfram allt stuðn­ing hers­ins.

„Ég vil ekki ljúga og segja að við höfum ekki búist við ein­hverju öðru,“ sagði Freddy Guevara Cortez, úr Voluntad Popular-flokknum sem er í banda­lagi með hreyf­ingu Machado, í sam­tali við AFP um stöð­una eftir fall Maduros. „En ég held að við skiljum aðstæður og það sem við þurfum að gera er að laga okkur að raun­veru­leik­anum,“ bætti Guevara við, sem starfar fyrir hreyf­ing­una í útlegð í Banda­ríkj­unum.

Að svo stöddu þýðir það að bíða af sér stjórn­ar­tíð stað­geng­ils­for­set­ans Delcy Rodríguez, dyggs stuðn­ings­manns Maduros sem Trump hefur sagt að hann geti unnið með, svo lengi sem hún fylgi línu Washington og veiti Banda­ríkj­unum frjálsar hendur yfir olíu­auð­lindum Venes­ú­ela.

„Ef Delcy Rodríguez gerir allt sem Trump vill, mun hún missa þann (innri) stuðn­ing sem hún þarf til að halda völdum,“ spáði Guevara, fyrr­ver­andi póli­tískur fangi sem nú starfar sem fræði­maður.

„Og ef hún hlýðir ekki Trump, munu þeir (í Washington) lík­lega steypa henni af stóli eða gera eitt­hvað enn verra,“ bætti hann við.

Krefjast fulls aðgangs að olíuauðlindum

Rodríguez nýtur yfir­lýsts stuðn­ings hers­ins og rík­is­stofn­ana Venes­ú­ela. Bróðir hennar er for­seti þings­ins.

Machado hefur hins vegar enn ekki snúið aftur til Venes­ú­ela eftir að hún hvarf á brott, eftir margra mán­aða felu­leik, til að taka við frið­ar­verð­launum Nóbels í Osló í des­em­ber. Trump, sem sjálfur hafði auga­stað á Nóbels­verð­laun­unum, hefur síðan sagt að Machado „njóti ekki stuðn­ings“ í Venes­ú­ela sem leið­togi þjóð­ar­innar.

Edmundo González Urrutia, sem varð for­seta­fram­bjóð­andi stjórn­ar­and­stöð­unnar eftir að stjórn­kerfi Maduros úti­lok­aði Machado, er enn í útlegð. „Stjórn­ar­and­stöð­una skortir stofn­ana­legt skipu­lag eða áhrif innan stjórn­kerf­is­ins sem gera henni kleift að stýra póli­tískum valda­til­færslum,“ sagði venes­ú­elski grein­and­inn Ricardo Ríos við AFP.

Í mörg ár reyndu Banda­ríkin að losna við Maduro með refsi­að­gerðum og olíu­við­skipta­banni, þrátt fyrir að Venes­ú­ela búi yfir meiri sann­aðri olíu­auð­lind en nokk­urt annað land í heim­inum. Banda­ríkin studdu ítrekað kröfur stjórn­ar­and­stöð­unnar um kosn­inga­sigur, ann­ars vegar Juan Guaidó árið 2018 og hins vegar González Urrutia árið 2024. En þegar Maduro var loks far­inn, sneri Trump sér ekki að Machado eða González Urrutia, heldur að nán­ustu sam­verka­mönnum hins steypta leið­toga. „Trump er að brjót­ast inn í það sem eftir er af stjórn­kerfi Maduros og láta það vinna fyrir sig,“ sagði Ríos. Trump hefur sjálfur sagt að það sem hann vilji frá Rodríguez sé „algjör aðgangur“ að olíu Venes­ú­ela.

Machado, sem ítrekað lof­aði Trump og mikla her­upp­bygg­ingu hans í Karí­ba­haf­inu, sem að lokum leiddi til falls Maduros, sagð­ist á mánu­dag ekki hafa átt í sam­skiptum við hann frá 10. októ­ber. 

Stjórn­ar­and­staðan „getur ekki haldið áfram að binda allar vonir sínar við lausnir sem eru ákveðnar í Washington,“ sagði Mariano de Alba, sér­fræð­ingur í land­fræði og stjórn­málum Venes­ú­ela.

„Höggormurinn og liðsforingjar hans“ urðu eftir

Stuðn­ings­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem lang­flestir greiddu González Urrutia atkvæði sitt, hafa að mestu verið í felum á meðan dag­legar mót­mæla­göngur stuðn­ings­manna Maduros hafa átt sér stað í Caracas frá því honum var steypt af stóli. 

„Við skulum vera á varð­bergi, virk og skipu­lögð þar til lýð­ræð­is­leg valda­til­færsla hefur átt sér stað,“ hvatti Machado á sam­fé­lags­miðlum. En víð­tækur ótti hefur gripið um sig eftir að þús­undir manna voru hand­teknir fyrir að mót­mæla umdeildum sigri Maduros í kosn­ing­unum 2024. Tugir, mögu­lega hund­ruð, leið­toga stjórn­ar­and­stöð­unnar og gagn­rýnenda eru enn í útlegð eða í fang­elsi. 

Önnur stór hindrun er sögu­leg holl­usta hers­ins við Maduro og póli­tíska hreyf­ingu hans. Varn­ar­mála­ráð­herr­ann Vladimir Padrino og inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Diosdado Cabello, sem eru víða taldir raun­veru­legir vald­hafar í land­inu, voru við­staddir emb­ætt­is­töku Rodríguez á mánu­dag. Nema þeir verði einnig fjar­lægðir frá völdum eru litlar líkur á að stjórn­ar­and­staðan geti stýrt stofn­unum Venes­ú­ela með raun­veru­legum hætti. „Til þess að valda­til­færsla geti átt sér stað í Venes­ú­ela má Diosdado Cabello ekki eiga þátt í henni. Hann er sá sem hefur raun­veru­legt vald inn­an­lands,“ sagði José Antonio Colina, fyrr­ver­andi her­for­ingi Venes­ú­ela og stofn­andi Veppex, sam­taka stjórn­ar­and­stæð­inga í útlegð í Miami.

„Banda­ríkin tóku höf­uðið, tóku leið­tog­ann – en inn­an­lands skildu þau eftir högg­orm­inn og liðs­for­ingja hans.“

Bandaríkjaforseti kynnti fyrirætlanir sínar

Banda­ríkin hafa nú kynnt það sem þau kalla „orku­sam­komu­lag“ við Venes­ú­ela og segja að muni draga úr refsi­að­gerðum varð­andi sölu á olíu­vörum frá suður-amer­íska rík­inu.

Upp­lýs­ing­arnar komu frá banda­ríska orku­mála­ráðu­neyt­inu, nokkrum dögum eftir hand­töku leið­toga Venes­ú­ela, Nicolás Maduro. Donald Trump hefur síðan lýst því yfir að bráða­birgða­yf­ir­völd í Venes­ú­ela hafi sam­þykkt að Banda­ríkin stýri mark­aðs­setn­ingu á 30 til 50 millj­ónum tunna af hrá­olíu, og hefur ítrekað bætt því við að Banda­ríkin muni „reka“ Venes­ú­ela þrátt fyrir að engar banda­rískar her­sveitir séu á vett­vangi.

Trump sagði jafn­framt á sam­fé­lags­miðlum á mið­viku­dag að Venes­ú­ela muni ein­ungis kaupa vörur fram­leiddar í Banda­ríkj­unum fyrir það fé sem það fær úr „nýja olíu­samn­ingnum“, en þar á meðal eru mögu­leg kaup á land­bún­að­ar­af­urðum, lyfjum og orku­tækjum. 

Rík­is­ol­íu­fyr­ir­tæki Venes­ú­ela sagði jafn­framt að við­ræður um sölu hrá­olíu til Banda­ríkj­anna væru hafnar, í kjöl­far kröfu Washington um aðgang að olíu­birgðum lands­ins eftir brott­rekstur Maduros. „Viðræður standa yfir við Banda­ríkin um sölu á magni olíu innan ramma núver­andi við­skipta­sam­bands ríkj­anna tveggja,“ sagði fyr­ir­tækið PDVSA í yfir­lýs­ingu.

Banda­ríski orku­mála­ráð­herr­ann Chris Wright benti þó á að Washington muni hafa „ótíma­bundna“ stjórn á sölu venes­ú­el­skrar olíu. Hann sagði á við­burði í Miami á mið­viku­dag að slíkt vald og yfir­ráð væru nauð­syn­leg til að knýja fram nauð­syn­legar breyt­ingar í Venes­ú­ela. 

Venes­ú­ela seg­ist búa yfir um fimmt­ungi þekktra olíu­birgða heims­ins.

Allur ágóði inn á bandaríska reikninga

Banda­rísk stjórn­völd eru þegar farin að mark­aðs­setja venes­ú­elska hrá­olíu á alþjóða­vísu, að sögn orku­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Þar sagði einnig að allur ágóði af sölu hrá­olíu og olíu­vöru muni fyrst renna inn á reikn­inga undir stjórn Banda­ríkj­anna hjá alþjóð­lega við­ur­kenndum bönkum.

„Þessum fjár­munum verður ráð­stafað í þágu banda­rísku þjóð­ar­innar og venes­ú­elsku þjóð­ar­innar að mati banda­rískra stjórn­valda,“ sagði ráðu­neytið, án þess að veita frek­ari skýr­ingar.

Salan muni einnig „halda áfram um óákveð­inn tíma“, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá orku­mála­ráðu­neyt­inu.

Wright sagði í við­tali við CNBC að Banda­ríkin væru ein­ungis að stýra mark­aðs­setn­ingu og fjár­magns­flæði inn í Venes­ú­ela og hélt því fram að fjár­mun­irnir yrðu að mestu not­aðir til hags­bóta fyrir venes­ú­elsku þjóð­ina. „Við erum ekki að stela olíu neins,“ bætti hann við.

Á sama tíma munu banda­rísk þynn­ing­ar­efni vera flutt til Venes­ú­ela eftir þörfum til að „blanda, upp­færa og hámarka“ fram­leiðslu lands­ins á mjög þungri hrá­olíu.

Wright, sem áður starf­aði í olíu- og gas­geir­anum, sagði að það myndi krefj­ast „tuga millj­arða doll­ara og veru­legs tíma“ að koma fram­leiðslu Venes­ú­ela aftur upp í fyrri hæðir, yfir þrjár millj­ónir tunna á dag. Sér­fræð­ingar hafa einnig bent á að hrað­virk aukn­ing fram­leiðslu myndi mæta hindr­unum á borð við hnign­andi inn­viði, lágt olíu­verð og póli­tíska óvissu.

Aflétting fyrri refsiaðgerða

Að svo stöddu eru Banda­ríkin að „aflétta refsi­að­gerðum með mark­vissum hætti til að gera flutn­ing og sölu venes­ú­el­skrar hrá­olíu og olíu­vöru á heims­mark­aði mögu­lega,“ að sögn orku­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Meðal ann­arra aðgerða hyggj­ast Banda­ríkin heim­ila inn­flutn­ing ákveð­ins olíu­vinnslu­bún­aðar, vara­hluta og þjón­ustu til Venes­ú­ela, auk þess sem þau segj­ast ætla að vinna að end­ur­bótum á raf­orku­kerfi lands­ins til að styðja við olíu­fram­leiðslu.

Að öðru leyti sagði Hvíta húsið frétta­mönnum á mið­viku­dag að Banda­ríkin hefðu „hámarks­á­hrif“ á bráða­birgða­yf­ir­völd Venes­ú­ela.

Trump er vænt­an­legur til fundar með banda­rískum olíu­fram­leið­endum til að ræða áætl­anir varð­andi olíu­iðnað Venes­ú­ela, að sögn Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúa Hvíta húss­ins.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár